Viðtalið: Bjarni Ákason, GK
Í kvöld er það framkvæmdastjóri Epli á Íslandi sem er í viðtali hjá Golf1.is. Hann er nýkominn frá Las Colinas á Costa Blanca á Spáni, þar sem hann tók þátt í hinu árlega Costa Blanca Open og hafnaði ásamt meðspilara sínum Valdimar Grímssyni í 2. sæti! Árið 2011 sigrðuðu þeir félagar á sama móti sem þá bar nafnið Icelandic Open!!! Sjá má myndir frá Icelandic Open 2011 á Costa Blanca með því að SMELLA HÉR:
Fullt nafn: Bjarni Ákason
Klúbbur: Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði.
Hvar og hvenær fæddistu? Reykjavík 30. desember 1961 (Bjarni á sama afmælisdag og Tiger!)
Hvar ertu alinn upp? Í Háaleitishverfinu í Reykjavík.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Þetta er 4. árið mitt.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Það voru svo margir í kringum mann farnir að spila – ég skipti yfir – fór úr veiði, sem var aðaláhugamálið í golf.
Hvaða starfi gegnir þú? Ég er framkvæmdastjóri Epli á Íslandi.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Bara jafnt – Þeir fara verr með mann þessir skógarvellir….. nei annars þeir eru skemmtilegri út af þessari áskorun.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Holukeppni ennþá – fyrir okkur nýliðanna er það einfaldara.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Keilisvöllurinn – Hvaleyrin hjá Goflklúbbnum Keili.

Frá Keilisvellinum í Hafnarfirði – uppáhaldsgolfvelli Bjarna Ákasonar á Íslandi. Myndin er tekin í Epli.is Opnu móti 20. ágúst 2011. Mynd: Golf1.is
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? Las Colinas, á Costa Blanca, Spáni. Sjá má myndaseríu Golf 1 frá uppáhaldsgolfvelli Bjarna Ákasonar erlendis með því að SMELLA HÉR:
Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Það er Katlavöllur á Húsavík – 4. brautin þar var mjög sérstök, en hún er par-5 upp í móti í dogleg og endar á upphækkaðri flöt.
Hvað ertu með í forgjöf? 29
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Það voru 96 högg á Keilisvellinum.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Að verða í 3. sæti í Meistaramótinu hjá Keili í mínum forgjafarflokki.
Hefir þú farið holu í höggi? Nei.
Hvaða nesti ertu yfirleitt með í pokanum? Vatn og samlokur.
Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Já, já, Íslandsmótinu í júdó, handbolta og skák.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbók? Uppáhaldsmaturinn minn er nautasteik; uppáhaldsdrykkurinn er gin; uppáhaldstónlist: allt nema þungarokk; uppáhaldskvikmyndin: Braveheart; uppáhaldsbók: Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson.
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kk.: Björgvin Sigurbergsson. Kvk.: Ragga Sig.
Hvert er draumahollið? Ég og … John Daly, Siggi Hlö og Valdimar Grímsson.

Sigurvegararnir í Icelandic Open 2011. Valdímar Grímsson (lengst til vinstri), sem er einn fjögurra í draumaholli Bjarna og Bjarni Ákason (lengst til hægri). Með þeim á myndinni eru Bjarni Sigurðsson að aftan f.m og Grímur Valdimarsson fyrir framan f..m. Mynd: costablanca.is
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Uppáhaldskylfan? Þær eru allar óvinir mínir :-)…. en af þeim ætli 7-tréð sé ekki mesti vinur minn. Annars er allt í pokanum PING. Dræver: 12° bleikur Ping, Pútter: Belly-pútter, Ping Járn PW-4, og 1 Ping hálfviti.
Hefir þú verið hjá golfkennara. Ef svo er hverjum? Ég hef verið hjá einum aðila, Bjögga (Björgvin Sigurbergssyni í GK).
Ertu hjátrúarfullur? Já, stundum er ég það – Ég vil alls ekki vera fyrstur á teig og er stundum í sömu golfskónum, ef vel hefur gengið í þeim.
Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Í golfinu: Ég ætla mér að vinna minn forjgjafarflokk á Meistaramóti Keilis. Í lífinu: er það að lifa sem lengst og vera sem hamingjusamastur og hafa gaman að þessu.

Spilafélagarnir Valdimar Grímsson (t.v.) og Bjarni Ákason (t.h.), sigurvegarar Icelandic Open 2011. Mynd: costablanca.is
Hvað finnst þér best við golfið? Það er þessi útivera og svona félagsskapur svo finnst mér gaman að vera í mótum – Þá kemur fram nýr Bjarni Ákason.
Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? Svona 50%
Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Já, þeir eiga að horfa á kúluna áður en þeir slá hana.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



