Viðtalið: Andri Steinn Sigurjónsson, GV
Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja hófst í dag og var Golf 1 á staðnum í glampandi sólskini og góðu veðri eins og best gerist í Eyjum. Einn þátttakenda er Andri Steinn og var eftirfarandi viðtal tekið við hann:
Fullt nafn: Andri Steinn Sigurjónsson.
Klúbbur: GV.
Hvar og hvenær fæddistu? 24. ágúst 2001.
Hvar ertu alinn upp? Hér í Vestmannaeyjum.
Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er að fara í Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum í haust og vinn á sumrin við að slá garða.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á foreldra og 5 systkini – Pabbi og einn eldri bróðir minn spila golf.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Það var örugglega bara 6 ára.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Pabbi dró mig í það þegar ég var lítill.

Skógarvellir eru í meira uppáhaldi hjá Andra Steini en strandarvellir.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Skógarvelli af því að umhverfið er fallegri.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Holukeppni – það er einhvern veginn meiri keppni.
Hvað fannst þér um að Íslandsmótið í holukeppni væri spilað sem 13 holu mót? Það var öðruvísi, en það var fínt og fín tilbreyting.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Auðvitað Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum.

Frá Vestmannaeyjavelli – Völlurinn er ótrúlega fallegur! Mynd: Golf 1
Hefir þú spilað alla velli á Íslandi? Nei, hef ekki spilað alla, líklega 12 velli; Þrjá 9 holu velli: Bakkakotsvöll, Svarfhólsvöll á Selfossi og Gufudalsvöll í Hveragerði, en hinir voru allir 18 holu.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? Las Colinas og La Galiana.

Par-3 7. brautin á Las Colinas – uppáhaldsgolfvelli Andra Steins. Mynd: Golf 1
Hvað ertu með í forgjöf? 17,6.
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Man að ég fékk 56 punkta á La Sella.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Það að ná 56 punktum.
Hefir þú farið holu í höggi? Nei.
Spilar þú vetrargolf? Já, hér í Vestmannaeyjum (í inniaðstöðu og út í skýli).
Hvaða nesti ertu með í pokanum? Bara hollt og næringaríkt.
Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Já, fótbolta og handbolta.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Crépes; Uppáhaldsdrykkur? Fanta Lemon; Uppáhaldsbók? Allavega ekki Neistar ; Uppáhaldstónslist? Allt rapp; Uppáhaldskvikmynd: The Shawshank Redemption; Uppáhaldsgolfbók: Ekki hugmynd
Notarðu hanska? Já, Footjoy eða Titleist.
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kvk: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir; Kk: Jordan Spieth.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er uppáhaldskylfingur Andra Steins. Mynd: LET Access
Hvert er draumahollið? Ég og …. Sævald, Henning Darri og Gulli.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Það er Callaway járn 4-pitch; TaylorMade R11 dræver, TaylorMade 3-wood og hálfviti og Titleist Scotty Cameron pútter, 56° og 52° Callaway og 60° Titleist.
Hefir þú verið hjá golfkennara? Já, hjá Einari Gunnarssyni.
Ertu hjátrúarfullur? Já, ég þarf alltaf að tía nákvæmt.
Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Meginmarkmiðið í golfinu er að ná langt – og í lífinu er það að stofna fyrirtæki og verða ríkur.
Hvað finnst þér best við golfið? Félagsskapurinn.
Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? 90%
Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Bara að hafa jákvætt hugarfar.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
