St. Andrews er uppáhaldsgolfvöllur Alastairs erlendis.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 19. 2014 | 13:00

Viðbrögð við að Royal&Ancient leyfi konum að gerast félagar

Í gær var stór sögulegur dagur í golfinu en þá fengu konur í fyrsta skipti í 260 ára sögu Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews að gerast félagar í klúbbnum…. þótt sumir karlrembumiðlar hafi kosið að greina ekki frá þessari frétt!

Allir félagsmenn (allt karlar) þ.á.m. allþjóðlegir félagar alls 82% af 3/4 hluta allra félagsmanna R&A guldu jáyrði sitt við því að konum yrði heimiluð félagsaðild að golfklúbbnum, sem hingað til hefir verið lokaður karlaklúbbur.

Fannst mörgum sem tími væri kominn á að heimila konum að gerast félagar einkum í ljósi þess að St. Andrews er nú einu sinni „vagga golfsins“ og ekki bara hvaða golfklúbbur sem er.

Viðbrögð á félagmiðlum hafa öll verið á einn veg – stórkylfingar, sem aðrir jákvæðir í garð atkvæðagreiðslunnar.  Hér má sjá viðbrögð nokkurra þekktra aðila í golfheiminum:

Annika Sörenstam: I am thrilled the R&A has voted overwhelmingly to allow female members. This is a great day for golf and a historic one for women in golf— Annika Sorenstam (@ANNIKA59) September 18, 2014 (Lausleg þýðing: Ég er yfir mig ánægð að R&A hefir á yfirgnæfandi máta kosið að leyfa kvenfélagsaðild.  Þetta er frábær dagur fyrir golfið og sögulegur fyrir konur í golfi.“

Gary Player: Delighted that R&A voted to include female members. Absolutely the right decision & good for the game of golf.— Gary Player (@garyplayer) September 18, 2014. (Lausleg þýðing: Ánægður að R&A skuli hafa kosið að heimila konum aðild. Algjörlega rétt ákvörðun & góð fyrir golfleikinn).

Ted Bishop: Great announcement by R&A today allowing women members. 21st Century officially arrives in golf! (Lausleg þýðing: Frábær tilkynning hjá R&A í dag að leyfa kvenaðild. 21. öldin formlega komin í golfið!)

Charley Hull: Fantastic news from @randa  Must have been our great play @ricohwomensbrit last year lol! (Lausleg þýðing: Frábærar fréttir frá @randa. Þetta hlýtur að vera vegna frábærs leiks okkar á @ricohwomensbrit  á síðasta ári – hlegið upphátt!)