Vel heppnað Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri
Fyrsta Íslandsmóti golfklúbba í aldursflokki 12 ára og yngri fór fram í vikunni. Leiknar voru fimm umferðir á þremur dögum, eða 5 sinnum 9 holur hver umferð. Leikið var eftir tveggja manna Texas scramble fyrirkomulagi að fyrirmynd PGA krakkagolfsins, en hver 9 holu leikur samanstóð þremur þriggja holna leikjum og söfnuðu því liðin vinningum og flöggum (stigum).
Alls tóku 10 sveitir þátt og skiptist það í deildir eftir forgjöf, þ.e. Hvíta deildin sem lék um Íslandsmeistaratitilinn, og Gula deildin.
Mótið heppnaðist mjög vel og skemmtu krakkar og aðstandendur sér mjög vel þessa þrjá daga sem mótið fór fram. Leikið var fyrsta daginn hjá GM í Bakkakoti, annan daginn hjá GR á Korpunni og loks lokadaginn hjá okkur í GKG í Mýrinni. Krakkarnir komu einstaklega vel fram og voru til algerrar fyrirmyndar á vellinum.
Úrslit urðu eftirfarandi,
Hvíta deildin
GKG-1 – Guðmundur Snær Elíasson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Logi Traustason, Magnús Ingi Hlynsson, Magnús Skúli Magnússon, Styrmir Snær Kristjansson.
GR-1 – Berglind Ósk Geirsdóttir, Elías Ágúst Andrason, Helga Signý Pálsdóttir, Nói Árnason, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Sólon Blumenstein.
GM-2 – Ásþór Sigur Ragnarsson, Eyþor Björn Emilsson, Gunnar Maack, Hrólfur Örn Viðarsson, Markús Ingvarsson.
Gula deildin
GM-1 – Berglind Erla Baldursdottir, Dagbjört Erla Baldursdottir, Eva Kristinsdottir, Heiða Rakel Rafnsdóttir, María Rut Gunnlaugsdóttir, Sara Kristinsdóttir.
GS-2 – Almar Örn, Arngrímur Egill, Snorri Rafn, Ylfa Vár
GKG-2 – Arnar Daði Jónasson, Bjarki Bergmann, Elísabet Sunna Scheving, Helga Grímsdóttir, Rakel Eva Kristmannsdóttir, Veigar Már Brynjarsson
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
