Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2015 | 08:00

Veðjað á hver verði næsta kærasta Tiger

Ástralska súpermódelið Miranda Kerr hefir verið talin eiga í samböndum með James Packer, Justin Bieber, Tom Cruise, fyrrverandi eiginmann Orlando Bloom og næstum alla lausa og liðuga karlmenn í Hollywood

Hver er næsti kærasti súpermódelsins?

Hvað með hinn lausa, hjartbrotna Tiger Woods?

Breskir veðbankar eru engum líkir og nú er hægt að veðja á hver verði næsta kærasta Tiger.

Bestu líkurnar er fyrrum eiginkona hans Elín Nordegren talin eiga 7-1. Í 2. sæti hjá veðbönkunum er fyrrum Pussycat Doll söngkonan Nicole Scherzinger  12-1 og súpermódelið Irina Shayk og leikkonan Cameron Diaz koma næstar með líkurnar 16-1. Miranda er aðeins í 5. sæti af þeim sem mestar líkur eru taldar vera á að Tiger taki saman  við 20-1.

Með Miröndu í 5. sæti er hins vegar skrautlegur samsöfnuður kvenna  þ.e. klámstjarnan Jenna Jameson og enska módelið Kelly Brook – en á eftir þeim þremur eru aðrar sem taldar eru aðeins ólíklegir kandídatar í að verða kærustur Tiger þ.á.m. Lindsay Lohan, Rihanna, Caroline Wozniacki, Serena Williams, Katy Perry og Jennifer Lawrence.

Mjög fjarlægir möguleikar eru taldir vera þeir að Tiger taki saman við Neighbours sápuóperustjörnuna Margot Robbie 33-1 og enn fjarlægara að hann muni eiga í sambandi við Pippu Middleton, systur Kate verðandi Englandsdrottningar 100-1″

Tiger sagði balaðmönnum í gær, þriðjudaginn 5. maí 2015 á blaðamannafundi fyrir The Players, sem hefst á morgun,  að hann hefði ekkert sofið í 3 daga eftir sambandsslitin við Vonn.  Einnig hjálpaði ekki til að nú í vikunni er 9 ára dánarafmæli föður Tiger, þ.e. Earl Woods, en hann lést 2006.