Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2014 | 14:00

Vandamál hins ríka kylfings Paul Casey

Vælandi forríkir kylfingar á helstu mótaröðum heims eru ekki hátt skrifaðir hjá Frank Brownlow, golffréttaritara Belfast Telegraph.

Og nú fær Paul Casey á baukinn hjá Brownlow.

Hann skrifaði grein um að Casey væri vælandi yfir að hann væri í hættu að missa kortið sitt á Evrópumótaröðinni – sem sé það sama sem margir strögglandi kylfingar standa frammi fyrir á hverju keppnistímabili…. nema hvað Casey sé alls ekki strögglandi…. heldur forríkur

„Vandamál“ Casey stafar af því að hann hefir verið iðinn við kolann í Bandaríkjunum – hefir þénað  £700,000 (u.þ.b. 140 milljónir íslenskra króna) bara á þessu keppnistímabili  þó honum hafi ekkert gengið sérstaklega– en honum hefir ekki tekist að spila í lágmarki móta á Evrópumótaröðinni (13) til þess að halda korti sínu.

Casey er nú nr. 85 á heimslistnum — og það eru aðeins 50 efstu á heimslistanum sem eru velkomnir hvar sem er.

Brownlow segir að „vandamál“ Casey sé að hann sé mjög góður —- en bara ekki á heimsklassa eins og norður-írsku kylfingarnir McIlroy og Graeme McDowell.

Brownlow segir síðan í grein sinni:  „Casey stundi: „Ef maður er meðal efstu 50 í heiminum er allt létt. Ef maður er fyrir utan topp-50 þá er maður að horfa í 28 mót fyrir október sem er tonn af golfi.  Þetta er mjög erfið aðstaða að vera í.“ sagði þrefaldi Ryder Cup leikamðurinn Casey. Ég hef verið svona í meðallagi á báðum mótaröðum, sem er vandamálið.  Ég er bara þreyttur og úrvinda. Ég hef kortið í Bandaríkjunum á næsta ári þannig að ég er ekki stressaður yfir því.  Ég verð að fara aftur til Evrópu (á þessu keppnistímabili) vegna þess að ég hef aðeins spilað í 9 mótum. Dagskráin mín er svo óljós. Hún (dagskráin) er ormagryfja.““

Brownlow: Hjartað á mér brestur (af vorkunn ….. eða þannig).

Má kenna svolítinn þjóðarrembing þarna?  Casey sé ekki eins góður og McIlroy og McDowell?