Valdís og Ólafía Golf
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2016 | 10:59

Valdís og Ólafía hófu leik í morgun á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hófu leik í morgun á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi.

Mótið fer fram á Buckinghamshire vellinum rétt utan við London og verða leiknar 36 holur í dag.

Valdís Þóra skrifar á fésbókarsíðu sína að völlurinn sé í frábæru standi og flatirnar leifturhraðar.

Þátttakendur í mótinu eru gríðarsterkir.

Hægt er að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR: 

Heimild: GSÍ