USGA veldur úlfúð vegna fyrirhugaðra teigmerkja á Opna bandaríska
Mike Davis, framkvæmdastjóri USGA þ.e. bandaríska golfsambandsins olli úlfúð á árlegum fréttamannafundi út af fyrirhuguðum teigmerkingum á Opna bandaríska risamótinu nú í sumar.
Þessi fréttamannafundur sambandins er árlegur viðburður þar sem farið er yfir hverju megi búast við á einum af 4 stærstu golfviðburðum ársins, Opna bandaríska risamótinu.
Í ár fer mótið fram á Chambers Bay í Washington, í fyrsta sinn, þannig að það er margt sem ekki er vitað um völlinn.
Davis lét falla orð sem höfðu sprengiáhrif þegar hann sagði eftirfarandi um völlinn þ.e. að hann:
„gefur okkur færi á að hafa teigmerki þar sem við viljum. Í sumum tilvikum gætum við endað á að setja teigmerkin í halla sem er andstætt því sem flestir gera ráð fyrir þ.e. að þau (teigmerkin) séu á mjög flötum svæðum. Það eru nokkur þar sem við gætum gefið leikmönnum halla niður á við, upp á við eða verið með teigmerkin í hliðarhalla. Þannig að það er áhugavert.“
Flestum fannst ekkert áhugavert við þessi orð Davis.
Það er órituð regla í golfinu að teigmerki séu á jafnsléttu alveg eins og flatir en það að kylfingar hefji og ljúki leik á ójöfnu er bæði erfitt og ósanngjarnt.
Nógu svínslega erfitt er nú Opna bandaríska í forveginn, en það er talið það erfiðasta af risamótunum 4 og óþarfi að þyngja það enn meira.
Jamm, fólki var ekkert vel við þessa hugmynd Davis og hefir farið hamförum á félagsmiðlunum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
