Úrtökumót f. Evróputúrinn: Ólafur úr leik
Ólafur Björn Loftsson, GKG, tók þátt í einu af 1. stigs úrtökumótunum fyrir Evróputúrinn; sá eini af íslensku kylfingunum sem keppti í Hardelot, Frakklandi. Mótið fór fram 9.-12. október og lauk því í gær.
Ólafur Björn lék lokahringinn á 2 yfir pari og lauk keppni á samtals á 2 yfir pari, 286 höggum (69 70 74 73).
Það voru 118 sem hófu keppni og 24 efstu kylfingarnir, sem fengu að halda áfram á 2. stigs úrtökumót.
Ólafur Björn lauk keppni T-45 og er því úr leik.
Sigurvegari í úrtökumótinu í Hardelot var Skotinn Sam Locke, en hann lék á samtals 12 undir pari.
Alls reyndu 10 íslenskir kylfingar fyrir sér á 1. stigs úrtökumótum fyrir Evróputúrinn og komust 4 þeirra (Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GKB; Haraldur Franklín Magnús, GR og Rúnar Arnórsson, GK, áfram á 2. stigið og munu keppa þar ásamt 5. íslenska kylfingnum, Guðmundur Ágústi Kristjánssyni, GR, um réttinn til að spila á lokaúrtökumótinu, þar sem ræðst hverjir hljóta kortin eftirsóttu og þar með keppnisrétt á Evróputúrnum, keppnis-tímabilið 2020.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
