Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er uppáhaldskylfingur Andra Steins. Mynd: LET Access
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2016 | 07:45

Úrtökumót f. LPGA: Ólafía Þórunn á pari og T-12 e. 3. dag

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur úr GR, lék fyrsta hring á 2. stigi úrtökumótsins fyrir stærstu atvinnumótaröð heims í kvennaflokki, LPGA mótaröðina í Bandaríkjunum.

Úrtökumótið ber heitið: LPGA and SYMETRA Tour Qualifying School – Stage II.

Úrtökumótið fer fram á Plantation golfsvæðinu í Venice, Flórída, í Bandaríkjunum.

Alls taka 192 keppendur þátt og er leikið á tveimur keppnisvöllum sem kallast Bobcat og Panther.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leiknar verða 72 holur eða fjórir keppnishringir á fjórum dögum.

Þeir kylfingar sem verða í einu af 80 efstu sætunum komast áfram á lokaúrtökumótið eða 3. stigið. Þeir hafa jafnframt tryggt sér keppnisrétt á Symetra mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröðin í Bandaríkjunum í kvennaflokki.

Ólafía Þórunn er svo gott sem búin að tryggja sér keppnisrétt á SYMETRA Tour og lokaúrtökumótinu, er T-12 fyrir lokahringinn. Hún er búin að spila á samtals sléttu pari, 216 höggum (72 73 71).

Í efsta sæti á úrtökumótinu fyrir lokahringinn er norska frænka okkar Marianne Skarpenord en hún hefir leikið á samtals 10 undir pari (69 68 69) og hefir talsvert forskot á þá sem er í 2. sæti, bandarísku stúlkuna Maíu Schechter, sem leikið hefir á 5 undir pari.

Mjög sterkir og/eða þekktir keppendur eru á 2. stigi úrtökumótsins auk Ólafíu Þórunnar, m.a. Mel Reid frá Englandi, sem átt hefir sæti í Solheim Cup liði Evrópu; hin bandaríska Kathleen Ekey sem þykir þar að auki einn kynþokkafyllsti kvenkylfingur heims (sjá með því að SMELLA HÉR:) hin unga Angel Yin, sjá frétt Golf 1 frá 2012 um Angel, þegar hún aðeins 13 ára tók þátt í US Women´s Open)  með því að SMELLA HÉR: ; annar írsku golfsnillingstvíburana Leona Maguire; Aditi Ashok frá Indlandi, sem sigraði á lokaúrtökumóti LET 2016 (sjá kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR:) og Isi Gabsa frá Þýskalandi (sjá kynningu Golf 1 á Isi með því að SMELLA HÉR:) svo örfáar af mörgum séu nefndar.

Sjá má stöðuna á 2. stigi úrtökumótsins fyrir LPGA með því að SMELLA HÉR: