Úrtökumót f. Evróputúrinn: GR-ingarnir 4 komust ekki inn á lokaúrtökumótið
Íslensku kylfingarnir fjórir sem komust í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina hafa allir lokið keppni á 2. stig úrtökumótsins. Þeir kepptu á fjórum mismunandi keppnisvöllum á Spáni. Keppni á 2. stigi úrtökumótsins fór fram dagana 4.-7. nóvember. Andri Þór Björnsson, Þórður Rafn Gissurarson, Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson náðu ekki að komast í gegnum 2. stigið og hafa því lokið keppni á þessu tímabili á úrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.
Andri Þór Björnsson lék samtals á +5 (68-73-74-73) og endaði Andri Þór í 39.-43. sæti. Þetta er í fyrsta sinn sem Andri Þór leikur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðinni.
Andri Þór keppti á Las Colinas vellinum í Alicante. Andri Þór hefur nú þegar tryggt sér keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni.
Þórður Rafn Gissurarson lék á +6 samtals (77-75-72-70) og endaði hann í 57.-60. sæti.
Þórður Rafn keppti á Campo de Golf El Saler vellinum við Valencia en þetta er í annað sinn sem Þórður Rafn kemst inn á 2. stig úrtökumótsins. Þetta er í sjöunda sinn sem Þórður keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður keppti í fyrsta sinn árið 2009 en hann komst í gegnum 1. stigið árið 2014 en féll úr keppni á 2. stiginu.
Haraldur Franklín Magnús endaði í 51.-53. sæti á (76-70-71-74). Hann lék samtals á +3.
Haraldur Franklín keppti á Panoramica Golf & Sport Resort sem er ekki langt frá Tarragona svæðinu á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem Haraldur reynir við úrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Haraldur Franklín hefur nú þegar tryggt sér takmarkaðann keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni.
Guðmundur Ágúst Kristánsson lék samtals á (73-71-68-76) og endaði hann í 59.-62 . sæti.
Guðmundur Ágúst keppti á Lumine Golf & Beach Club við Tarragona rétt við Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur Ágúst reyndi einnig við úrtökumótið fyrir Nordic League atvinnumótaröðina en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
screen-shot-2016-11-07-at-1-50-11-pm
Axel Bóasson (GK), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Pétur Freyr Pétursson (GKj.), og Ólafur Björn Loftsson (GKG) reyndu sig allir á úrtökmótinu fyrir Evrópumótaröðina 2016 og féllu þeir allir úr keppni á 1. stiginu.
Aldrei áður hafa jafnmargir keppendur frá Íslandi keppt í karlaflokki á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Og þar að auki hafa aldrei jafnmargir karlar komist inn á 2. stig úrtökumótsins.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
