Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2017 | 22:00

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Andri Þór og Guðmundur Ágúst á pari e. 1. dag

GR-ingarnir Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hófu leik í dag á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Andri og Guðmundur keppa á Frilford Heath vellinum á Englandi og stendur mótið yfir í fjóra daga.

Þeir léku báðir á pari vallar í dag eða 72 höggum.

Þeir eru í 25.-36. sæti en alls eru 103 keppendur sem taka þátt – og má gera ráð fyrir að 25 efstu komist áfram á 2. stigið.

Þetta er í annað sinn sem þeir reyna fyrir sér á úrtökumótinu og þeir komust báðir í gegnum 1. stigið í fyrra.

Um 700 keppendur taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins en keppt er á 8 völlum í haust og komast um 25% af keppendum á hverju velli fyrir sig áfram á 2. stigið.

Sjá má stöðuna á Frillford Heath úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Texti og mynd: GSÍ