Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2016 | 07:00

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Andri Þór stóð sig best Íslandinganna á 1. degi

Íslensku kylfingarnir fjórir sem komust í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina leika á fjórum mismunandi keppnisvöllum á Spáni. Keppni á 2. stigi úrtökumótsins hófst í gær og fer fram dagana 4.-7. Nóvember og eru allir fjórir keppendurnir frá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Andri Þór Björnsson keppir á Las Colinas vellinum í Alicante en hann er að keppa í fyrsta sinn á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Andir Þór hefur nú þegar tryggt sér keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni. Andri er T-14 eftir 1. daginn, en hann lék 1. hring í úrtökumótinu á glæsilegum 68 höggum. Sjá stöðuna í Las Colinas úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Guðmundur Ágúst Kristjánsson keppir á Lumine Golf & Beach Club við Tarragona rétt við Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem Haraldur reynir við úrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Guðmundur Ágúst  hefur nú þegar tryggt sér takmarkaðan keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni. Guðmundur Ágúst er T-64 eftir 1. daginn, en hann lék 1. hring í úrtökumótinu á 73 höggum. Sjá stöðuna í Lumine úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Haraldur Franklín Magnús keppir á Panoramica Golf & Sport Resort sem er ekki langt frá Tarragona svæðinu á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur Ágúst reyndi einnig við úrtökumótið fyrir Nordic League atvinnumótaröðina en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Haraldur Franklín er T-76 eftir 1. daginn, en hann lék 1. hring í úrtökumótinu á 76 höggum. Sjá stöðuna í Panoramica úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Þórður Rafn Gissurarson keppir á Campo de Golf El Saler vellinum við Valencia en þetta er í annað sinn sem Þórður Rafn kemst inn á 2. stig úrtökumótsins. Þetta er í sjöunda sinn sem Þórður keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður keppti í fyrsta sinn árið 2009 en hann komst í gegnum 1. stigið árið 2014 en féll úr keppni á 2. stiginu. Þórður Rafn er í 77. sæti eftir 1. daginn, en hann lék 1. hring í úrtökumótinu á 77 höggum. Sjá stöðuna í El Saler úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Axel Bóasson (GK), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Pétur Freyr Pétursson (GM), og Ólafur Björn Loftsson (GKG) reyndu sig allir á úrtökmótinu fyrir Evrópumótaröðina 2016 og féllu þeir allir úr keppni á 1. stiginu.

Aldrei áður hafa jafnmargir keppendur frá Íslandi keppt í karlaflokki á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Og þar að auki hafa aldrei jafnmargir karlar komist inn á 2. stig úrtökumótsins.

Texti að meginhluta: GSÍ