Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2016 | 20:00

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Erfiðir lokahringir framundan hjá Guðmundi, Haraldi og Þórði

Hér fyrr í kvöld hefir verið ritað um Andra Þór Björnsson, sem er einn af fjórum, sem komust í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina, en allir leika GR-ingarnir  á fjórum mismunandi keppnisvöllum á Spáni. Keppni á 2. stigi úrtökumótsins fer fram dagana 4.-7. nóvember. Búast má við því að 20 efstu á hverjum velli fyrir sig komist áfram á lokastigið.

Andra Þór hefir gengið best en útlitið er heldur erfiðara er hjá hinum 3:

Þórður Rafn

Þórður Rafn. Mynd: GSÍ

Þórður Rafn Gissurarson keppir á Campo de Golf El Saler vellinum við Valencia en þetta er í annað sinn sem Þórður Rafn kemst inn á 2. stig úrtökumótsins. Þetta er í sjöunda sinn sem Þórður keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður keppti í fyrsta sinn árið 2009 en hann komst í gegnum 1. stigið árið 2014 en féll úr keppni á 2. stiginu.

Þórður Rafn er samtals búinn að spila á er á samtals 8 yfir pari (77 75 72) og er hann í 68. sæti eftir 3 keppnisdaga.

Sjá má stöðuna hjá Þórði með því að SMELLA HÉR: 

Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1

Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1

Haraldur Franklín Magnús keppir á Panoramica Golf & Sport Resort sem er ekki langt frá Tarragona svæðinu á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem Haraldur reynir við úrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Haraldur Franklín hefur nú þegar tryggt sér takmarkaðann keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni.

Haraldur Franklín hefir samtals spilað á 1 undir pari, 217 höggum (76 70 71). Hann er í 56. sæti fyrir þriðja hringinn.

Sjá má stöðuna hjá Haraldi Franklín með því að SMELLA HÉR:

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson keppir á  Lumine Golf & Beach Club við Tarragona rétt við Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur Ágúst reyndi einnig við úrtökumótið fyrir Nordic League atvinnumótaröðina en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Guðmundur Ágúst er á samtals 1 undir pari (73 71 68) og er í 44. sæti.

Sjá má stöðuna hjá Guðmundi með því að SMELLA HÉR: 

Axel Bóasson (GK), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Pétur Freyr Pétursson (GM.) og Ólafur Björn Loftsson (GKG) reyndu sig allir á úrtökmótinu fyrir Evrópumótaröðina 2016 og féllu þeir allir úr keppni á 1. stiginu.

Aldrei áður hafa jafnmargir keppendur frá Íslandi keppt í karlaflokki á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Og þar að auki hafa aldrei jafnmargir karlar komist inn á 2. stigið.