Úrslit í Sveitakeppni GSÍ – 2. deild karla – GÓ og NK spila í 1. deild á næsta ári!!!
Sveitir 2. deildar karla spiluðu á Hamarsvelli í Borgarnesi. Sveitirnar sem spiluðu í 2. deild í ár voru GA, GB, GH, GJÓ, GKB, GO, GÓ, NK.
Það voru sveitir Golfklúbbs Ólafsfjarðar og Nesklúbbsins sem spiluðu til úrslita. Leikar fóru svo að sveit GÓ sigraði með 3 vinningum gegn 2 sveita NK. Jón Gústaf Pétursson, GÓ og Grímur Þórisson, GÓ sigruðu þá Odd Óla Jónasson,NK og Stein Baug Gunnarsson, NK í fjórmenningi 3&1. Fylkir Þór Guðmundsson, GÓ vann Guðmund Örn Árnason, NK 2&1 og Sigurbjörn Þorgeirsson vann Eið Ísak Broddason, NK, 6&5. Þess mætti geta að sveit GÓ vann alla sína leiki í sveitakeppninni og var því með fullt hús stiga.
Leikirnir sem NK vann voru eftirfarandi: Rúnar Geir Gunnarsson, NK vann Heiðar Davíð Bragason, GÓ, 4&3 og Dagur Jónasson vann Sigurð Pétursson 1&0.
Það eru sveitir GÓ og NK sem spila í 1. deild að ári.
Það voru GJÓ og GH sem spiluðu um 3. sætið og þar vann sveit GJÓ 3&2. Í leik um 5. sætið hafði sveit heimamanna í GB betur gegn sveit GKB 3&2. Sveit GO vann hins vegar sveit GA nokkuð örugglega 4&1 í leik um 7. sætið, en báðar sveitir eru fallnar í 3. deild.
Úrslitin í 2. deild karla í Sveitakeppni GSÍ eru því eftirfarandi:
1. sæti Golfklúbbur Ólafsfjarðar
2. sæti Nesklúbburinn
3. sæti Golfklúbburinn Jökull
4. sæti Golfklúbbur Húsavíkur
5. sæti Golfklúbbur Borgarnes
6. sæti Golfklúbbur Kiðjabergs
7. sæti Golfklúbburinn Oddur
8. sæti Golfklúbbur Akureyrar
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
