Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2022 | 18:00

Unglingamótaröðin 2022: Hjalti Kristján Hjaltason er stigameistari í fl. 12 ára og yngri stráka

Hjalti Kristján Hjaltason, GM, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 12 ára og yngri. Máni Freyr Vigfússon, GK, varð annar og Björn Breki Halldórsson, GKG, varð þriðji.

Hjalti Kristján tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á Íslandsmótinu í höggleik og varð annar á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann varð einnig í öðru sæti á fyrsta móti tímabilsins.

Máni Freyr lék á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann varð einu sinni í þriðja sæti og einu sinnií því fjórða.

Björn Breki tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann varð einu sinni í öðru sæti og einu sinni í þriðja sæti.

Sjá má stigalistann í heild sinni með því að SMELLA HÉR: