Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2022 | 20:00

Unglingamótaröðin 2022: Elva María Jónsdóttir er stigameistari í fl. 12 ára og yngri stelpna

Elva María Jónsdóttir, GK, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 12 ára og yngri. Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM, varð önnur og María Högnadóttir, GSE, varð þriðja.

Elva María tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún sigraði á báðum Íslandsmótunum, í höggleik og í holukeppni.

Eiríka Malaika tók þátt á þremur mótum af alls fimm og hún varð í fjórða sæti á Íslandsmótinu í höggleik og í öðru sæti á Íslandsmótinu í holukeppni.

María tók þátt á tveimur mótum af alls fimm. Hún varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik og í þriðja sæti á Íslandsmótinu í holukeppni.

Til þess að sjá stigalistann í heild sinni SMELLIÐ HÉR: