Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2012 | 20:30

Unglingamótaröð Arion banka (6): Óðinn Þór Ríkharðsson á besta skori síðasta mótsins í ár – 67 glæsihögg!!!

Það er Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG sem var á besta skorinu á 6. og síðasta móti Unglingamótaraðar Arion banka, sem lauk á Urriðavelli í dag. Það voru 129, sem voru skráðir í mótið og 115 luku keppni. Óðinn Þór spilaði Urriðavöll á 4 undir pari, þ.e. 67 glæsilegum höggum!!!

Óðinn Þór, GKG; Gísli, GK og Birgir Björn, GK að fara yfir skor dagsins, þ.á.m glæsiskor Óðins Þór. Mynd: Golf 1

Óðinn fékk 7 fugla og 3 skolla á hringum en fuglarnir hans komu á 1.; 2.; 5.; 7.; 12.; 13. og 15. braut, en skollarnir á 10.; 17. og 18. braut. Samtals spilaði Óðinn Þór á 1 yfir pari, 143 höggum (76 67). Frábær árangur hjá Óðni Þór!!!!

Hetja dagsins, Óðinn Þór, GKG og Gísli Sveinbergs, GK spá í málin á 18. flöt Urriðavallar í dag. Mynd: Golf 1.

Reyndar voru það GKG-ingar sem vermdu öll efstu sætin í flokki 15-16 ára drengja því Aron Snær Júlíusson varð í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Óðni á samtals 144 höggum (72 72).

Aron Snær Júlíusson, GKG, varð í 2. sæti. Mynd: Golf 1.

Í 3.-4. sæti urðu síðan Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og Ævarr Freyr Birgisson, GA á samtals 151 höggi; Egill Ragnar á (77 74) og Ævarr Freyr (74 77).

Egill Ragnar Gunnarsson, GKG. Mynd: Golf 1

Ævarr Freyr Birgisson, GA, varð í 3.-4. sæti. Mynd: Golf 1

Sjá má úrslit í flokki 15-16 ára drengja á Ungingamótaröð Arion banka hér:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur
1 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 3 F 31 36 67 -4 76 67 143 1
2 Aron Snær Júlíusson GKG 2 F 38 34 72 1 72 72 144 2
3 Egill Ragnar Gunnarsson GKG 3 F 36 38 74 3 77 74 151 9
4 Ævarr Freyr Birgisson GA 5 F 38 39 77 6 74 77 151 9
5 Kristófer Orri Þórðarson GKG 3 F 37 38 75 4 77 75 152 10
6 Gústaf Orri Bjarkason GK 7 F 39 38 77 6 75 77 152 10
7 Gísli Sveinbergsson GK 1 F 37 39 76 5 77 76 153 11
8 Elís Rúnar Elísson GKJ 7 F 40 40 80 9 78 80 158 16
9 Einar Snær Ásbjörnsson GR 6 F 37 46 83 12 77 83 160 18
10 Friðrik Berg Sigþórsson GL 8 F 40 42 82 11 79 82 161 19
11 Arnór Tumi Finnsson GB 5 F 38 38 76 5 87 76 163 21
12 Sigurjón Guðmundsson GKG 9 F 41 40 81 10 84 81 165 23
13 Albert Garðar Þráinsson GO 12 F 39 45 84 13 83 84 167 25
14 Tumi Hrafn Kúld GA 5 F 40 42 82 11 86 82 168 26
15 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 10 F 40 39 79 8 90 79 169 27
16 Orri Bergmann Valtýsson GK 5 F 39 50 89 18 81 89 170 28
17 Jóhannes Snorri Ásgeirsson GS 8 F 45 40 85 14 86 85 171 29
18 Vikar Jónasson GK 7 F 41 41 82 11 89 82 171 29
19 Elías Björgvin Sigurðsson GKG 11 F 39 41 80 9 91 80 171 29
20 Bragi Arnarson GKJ 10 F 45 41 86 15 85 86 171 29
21 Daði Valgeir Jakobsson GKG 11 F 41 44 85 14 88 85 173 31
22 Sverrir Ólafur Torfason GKG 10 F 39 48 87 16 86 87 173 31
23 Ottó Axel Bjartmarz GO 8 F 40 40 80 9 94 80 174 32
24 Guðjón Helgi Auðunsson GHG 12 F 41 47 88 17 88 88 176 34
25 Arnar Ingi Njarðarson GR 10 F 45 40 85 14 92 85 177 35
26 Björn Leví Valgeirsson GKG 11 F 43 48 91 20 88 91 179 37
27 Eysteinn Orri Matthíasson GKG 14 F 41 45 86 15 98 86 184 42
28 Andri Búi Sæbjörnsson GR 11 F 48 45 93 22 92 93 185 43
29 Hilmar Leó Guðmundsson GKG 13 F 53 58 111 40 86 111 197 55
30 Birgir Björn MagnússonRegla 6-6d: Röng skor á holu GK 2 F 37 34 71 0 76 71 147 5
31 Elías Fannar ArnarssonRegla 6-6d: Röng skor á holu GK 11 F 46 40 86 15 86 86 15
32 Gunnar Smári ÞorsteinssonForföll GR 6 F 40 46 86 15 86 86 15
33 Alexander Breki MarinóssonRegla 6-6b: Undirritun og afhending skorkorts GK 0
34 Andri Már ValssonRegla 11-5: Leikið af röngum teig GKJ 0
35 Sigurður Erik HafliðasonRegla 6-3: Rástímar og riðlar GR 0
36 Theodór Ingi GíslasonForföll GR 0

Birgir Björn Magnússon, GK og Gísli Sveinbergsson, GK, þ.e. Íslandsmeistarinn í holukeppni og Íslandsmeistarinn í höggleik 2012 takast í hendur á 18. flöt Urriðavallar eftir gott tímabil í lok sumars, að loknu síðasta mótinu á Unglingamótaröð Arion banka 2012. Mynd: Golf 1.