Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2015 | 09:00

Um fíkniefnanotkun Dustin Johnson og reglur PGA Tour þar um

Er Dustin Johnson maður með vandamál í einkalífinu (ástæðan sem gefin var upp fyrir að hann tæki sér 11 vikna „frí“ frá keppnisgolfinu) eða var hann bara settur í óopinbert bann frá PGA Tour?

Eða hvorutveggja?

Og hvernig geta æðstu yfirmenn golfmótaraðar sem PGA Tour ætlast til að vera teknir alvarlega þegar þeir vernda fíkniefnaneytendur á mótaröðinni með ógagnsæjum reglum, núna þegar golfið er aftur keppnisgrein á Ólympíuleikunum á næsta ári eftir aldar eyðimerkurgöngu?

Fyrsta móti ársins á PGA Tour lauk í gær án þátttöku 8-falds sigurvegara Johnson, sem hélt áfram endurhæfingu sinni og að eigin sögn „átaki í einkalífinu.“

A.m.k. er það, það sem Dustin segir.

Golf.com hélt því fram nú í haust að Johnson hefði fallið á 3. fíkniefnaprófinu og í 2. sinn á kókaínprófi og hefði verið settur í leikbann í 6 mánuði á PGA Tour.   Því banni ætti skv. þessu að ljúka fyrstu vikuna í febrúar 2015.

„Vandræði í einkalífinu" ekki tekið á þeim eins hart hjá stjörnunum og okkur hinum?

„Vandræði í einkalífinu“ ekki tekið á þeim eins hart hjá stjörnunum og okkur hinum?

Talsmenn PGA Tour hafa borið tilbaka að Johnson hafi verið settur í leikbann, en Golf.com hélt því samt fram að þetta frí hans væri fyrirsláttur því að öðrum kosti (hefði hann ekki farið í „frí“) hefði hann fengið leikbann.

Dustin Johnson og talsmenn hans hafa neitað að láta nokkuð uppi um málið og sumir styrktaraðilar kappans segjast ekki hafa heyrt í honum síðan í júlí á síðasta ári.

Nafn Dustin Johnson hefir einnig verið svert þar sem sögusagnir fóru á kreik að hann hefði átt í framhjáhaldi með tveimur konum, sem giftar voru öðrum PGA Tour leikmönnum.

En þetta fíkniefnamál er það sem er ansi skrítið.

Í bandarískum íþróttum er PGA Tour einu samtökin sem gefa ekki upp nöfn leikmanna sem falla á fíkniefnaprófum.

Dustin Johnson

Dustin Johnson

Þetta er ekki í samræmi við WADA reglurnar sem gera kröfu um meirs gagnsæji, en þegar golfið verður að keppnisgrein á Ólympíuleikunum, á næsta ári, þá verður að verða breyting á.

Kylfingar munu verða prófaðir hvort þeir séu að misnota fíkniefni og ef þeir falla á prófinu verða nöfn þeirra gerð heyrinkunn.

Þetta er ein af forsendum þess að fá að taka þátt í Ólympíuleikunum.  Spurning hvernig kylfingar og golfið standa þá.

Framkvæmdastjóri PGA Tour, Tim Finchem hefir ítrekað endurtekið að það sé réttur golfíþróttarinnar að vera ekkert að auglýsa þá sem falli á lyfja-eða fíkniefnaprófum.

„Ein ástæða þess er að okkur finnst að fólki sé algerlega sama um þetta,“ sagði Finchem nýlega.

„Við fáum ekkert tölvupóst frá áhangendum sem segja: „Af hverju eruð þið ekki að segja okkur frá?“ sagði hann.  „Þannig að við teljum að fólk hungri ekkert í slíkar upplýsingar.“

Dustin Johnson

Dustin Johnson