Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2012 | 17:00

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari velur í landsliðsverkefni unglinga

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið unga og efnilega kylfinga sem munu keppa fyrir Íslands hönd í nokkrum landsliðsverkefnum sem framundan eru í sumar. Um er að ræða EM stúlkna í Þýskalandi, European Young Masters mótið í Ungverjalandi og Junior Open mótið í Englandi.

Sex stúlkur keppa fyrir Íslands hönd á EM stúlkna sem fram fer í Þýskalandi 10.-14. júlí í Þýskalandi á St. Leon Rot vellinum. Sjá nánar með því að SMELLA HÉR:  

EM stúlkna í Þýskalandi (17-18 ára):
Anna Sólveig Snorradóttir GK
Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK
Guðrún Pétursdóttir GR
Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK
Sunna Víðisdóttir GR
Særós Eva Óskarsdóttir GKG
Fararstjórar:
Ragnar Ólafsson
Brynjar Eldon Geirsson

European Young Masters mótið fer fram 23.-28. júlí næstkomandi og verður leikið á Royal Balaton vellinum í Ungverjalandi. Mótið er afar sterkt en þar keppa margir af efnilegustu kylfingum Evrópu. Sjá nánar með því að SMELLA HÉR:

European Young Masters (16 ára og yngri):
Aron Snær Júlíusson GKG
Egill Ragnar Gunnarsson GKG
Sara Margrét Hinriksdóttir GK
Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG

Junior Open eða Opna meistaramót unglinga fer fram 16.-18. júlí á Fairhaven vellinum í Englandi. Kylfingar frá um 80 löndum taka þátt í mótinu og er leikið í mótinu annað hvert ár. Sjá nánar með því að  SMELLA HÉR: 

Junior Open (Opna meistaramót unglinga):
Gísli Sveinbergsson GK
Ragnhildur Kristinsdóttir GR