Berglind Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1. Úlfar hefir valið íslenska kvennalandsliðið sem keppir á EM 2016
Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur valið kvennalandsliðið í golfi sem keppir í Evrópukeppni landsliða hér á Íslandi hjá Golfklúbbnum Oddi dagana 5.-9. júlí. Mótið, sem fram fer á Urriðavelli er það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi og hingað til lands koma allir bestu áhugakylfingar Evrópu í kvennaflokki.
EM lið Íslands verður þannig skipað en þrír kylfingar koma úr GR og þrír kylfingar úr GK.
Anna Sólveig Snorradóttir, GK – val landsliðsþjálfara
Berglind Björnsdóttir, GR – efst á stigalista
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK – efst á WAGR heimslista
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – efst í úrtökumóti fyrir kvennalandslið
Signý Arnórsdóttir, GK – val landsliðsþjálfara
Sunna Víðisdóttir, GR – val landsliðsþjálfara
Þjálfari: Úlfar Jónsson
Liðsstjóri: Ragnar Ólafsson
Úlfar segir að það sé spennandi að takast á við þetta verkefni hér heima á Íslandi. „Urriðavöllur er einn af glæsilegustu völlum landsins og hentar vel fyrir EM kvennalandsliða. Teigastaðsetningar verða allt aðrar og völlurinn um 500 metrum lengri en þær hafa vanist í þeim mótum sem hafa verið leikin hér á mótaröðunum. Við höfum því undirbúið okkur vel og spilað mikið á vellinum undanfarnar vikur. Það skiptir okkur máli að tefla fram reynslumiklu liði og hafa þær allar þær allar tekið þátt í Evrópukeppnum áður,“ sagði Úlfar.
Keppnisfyrirkomulagið á EM er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem fimm bestu skorin telja hjá hverri þjóð. Að því loknu tekur við holukeppni þar sem átta efstu liðin leika í A-riðli um Evrópumeistaratitilinn, Í B-riðli leika þjóððirnar sem enduðu í 9.-16. sæti og í C-riðli leika þær þjóðir sem enduðu í 17.-20. sæti í höggleiknum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
