Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2016 | 11:15

Tvít Spieth til Peyton Manning e. sigurinn í Super Bowl

Denver Broncos og goðsagnakenndur fyrirliði þeirra Peyton Manning, í bandaríska ruðningsboltanum unnu Super Bowl 50 s.l. sunnudag.

Hár Manning er tekið að hörfa, líkt og kraftarnir í örmunum enda Manning við það að draga sig í hlé úr ruðningsboltanum.

En það var einn sem tók eftir „háu enni“ Manning og hörfandi hárlínu, en það er nr. 1 á heimslistanum, Jordan og sendi honum eftirfarandi tvít:

From one big forehead to another.. I’d enjoy sharing some 🍻 with the Sheriff sometime. Heck of a post game interview haha

(Frá einu háu enni til annars …. Mér þætti gaman að drekka bjór með sýslumanninum einhverntímann. Þetta var æðislegt viðtal eftir leikinn haha) – Sjá má viðtal við Manning með því að SMELLA HÉR: 

Eftir einhverju svipuðu var tekið hjá Spieth þ.e. að hann væri farinn að missa hárið og ófáar greinar skrifaðar um það! Gott að Spieth hefir húmor fyrir því!

Nú þegar Manning er að hætta í ruðningsboltanum, snýr hann sér eflaust að golfinu, enda er hann vinsæll í allskyns Pro-Am mót í Bandaríkjunum og tekur oftar en ekki þátt í góðgerðargolfmótum.