Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2015 | 21:00

Tveir lifa af flugslys á golfvelli

Að flugvélar lendi á golfvelli er e.t.v. ekki óþekkt.  En að flugvél hrapi á golfvöll – og allir komist lífs af er ansi sérstakt og auðvitað gleðilegt.

Á einhvern óskiljanlegan hátt lifðu tveir menn einvhern veginn af þegar ein-hreyfla Cessna flugvél þeirra hrapaði á golfvöll Valley View í Layton, Utah.

Skv. KSL.com sjónvarpsfréttastofunni klippti vélin tré við æfingasvæðið áður en hún lenti öfug þ.e. með nefið grafið í bönker á æfinga chippflötinni.  Sjá fréttina með því að SMELLA HÉR: 

„Einn gæjinn sem við hjálpuðum úr vélinni, farþeginn virtist vera ansi mikið í lagi með.  Flugmaðurinn var þjáðari því hann var fastur í vélinni,“ sagði yfirgolfkennari Valley View, Dustin Volk. „Það lak blóð úr höfði hans. Við leystum hann úr öryggisbeltinu og biðum saman eftir að sjúkrabíllinn kom.“

Gert var að sárum flugmannsins á vettvangi en farþeginn var fluttur á spítala í nokkuð góðu ásigkomulagi.

„Það var afar mikil heppni að enginn klúbbfélagi skyldi meiðast þar sem margir félagar spila völlinn  [á laugardegi].“ sagði slökkviliðsmaður Layton City, Doug Bitton í viðtali við KUTV2.  Sjá með því að SMELLA HÉR: