Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2014 | 08:00

Tiger var í veislu Obama í Hvíta húsinu

Tiger Woods var meðal gesta sem sóttu Obama Bandaríkjaforseta heim í Hvíta húsið í gær.

Tiger og Obama

Zach Johnson, Tiger og Obama

Mikið var búið að spekúlera í fjölmiðlum vestra hvort Tiger myndi mæta en gestalistinn var ekki gefinn upp af Hvíta húsinu.

3 mestu kylfingar í Hvíta húsinu: Obama, varaforsetinn Joe Biden og þingmaðurinn John Boehner (speaker of the House) tóku á móti Forsetabikarsliðinu.

Í ræðu sinni til þess að bjóða gestina (Forsetabikarsliðið velkomið) vísaði Obama m.a. til þessara tveggja framangreindu sem uppáhaldsgolffélaga sinna, sem báðir yrðu þó að gefa sér högg vegna forgjafar (þ.e. Obama með hærri forgjöf en þeir báðir).

Obama þakkaði sérstaklega Phil Mickelson fyrir að gefa sér ráð um hvernig ætti að ná upp boltum úr sandglompu.

Obama fékk ráð hjá Mickelson

Obama fékk ráð hjá Mickelson – hér heilsar hann Phil

Allir í bandaríska forsetabikarsliðinu voru mættir í veislu Obama og líka nokkrir úr alþjóðaliðinu.

Mickelson og fjölskylda hans flugu sérstaklega frá Kaliforníu til Washington til þess að mæta.

„Við erum sérlega stolt af forsetabikarsliðinu okkar,“ sagði Obama.  „Ég vona að Heimsbikarslið okkar fari að fordæmi þeirra!“