Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2018 | 20:00

Tiger trúir því að sigur sé í nánd

Hinn 42 ára Tiger Woods trúir því að hann sé við það að fara að sigra á fyrsta PGA móti sínu í 5 ár … ef bara hann færi að pútta betur! Þau voru einfaldlega ekki að detta á Quail Hollow, þar sem Wells Fargo mótið fór fram.

Tiger virðist hafa tekið framförum á Wells Fargo, en hann var m.a. með skor upp á 3 undir pari, 68 högg á 3. hring.

Hann var hins vegar 9 höggum á eftir Jason Day fyrir lokahringinn og ekki að keppa til úrslita, en þessi 6. hringur hans á pari eða betra lofar góðu!

Ég er nálægt þessu,“ sagði Tiger.

Ég er að slá boltann nógu vel til að vera að keppa til sigurs, mér hefir bara ekki tekist að setja niður púttin.“

Mér finnst eins og ég sé að slá vel og ég stefni bara í rétta átt … fyrir næstu viku,“ sagði Tiger sem alls hefir sigrað í 105 atvinnumótum á ferli sínum, þar af 79 á PGA Tour.