
Tiger tekur þátt í 3 mótum á næstunni
Tiger Woods gerði það heyrinkunnugt í dag að hann muni spila á Honda Classic í Palm Beach Gardens, Flórída og the World Golf Championship-Cadillac Championship í Doral, Miami á eftir heimsmótið í holukeppni sem hefst á morgun SJÁ YFIRLÝSINGU Á HEIMASÍÐU TIGER HÉR:
Tiger hefir ekkert spilað á PGA eftir að hann sigraði á Farmers Insurance Open í San Diego í síðasta mánuði, en hann snýr aftur á Accenture Match Play Championship í Tucson í næstu viku.
Síðan hefst dagskráin í Flórída, fyrst spilar hann á Honda Classic, sem hefst 28. febrúar og síðan á Doral.
Ef hann heldur sig við hefðbundnu dagskrá sína mun hann taka sér frí vikuna eftir Doral þegar PGA túrinn stoppar í Innisbrook nálægt Tampa en þar fer Transitions Championship fram, og síðan mun hann væntanlega líka spila á Arnold Palmer Invitational í Bay Hill, þar sem hann mun freista þess að verja titil sinn 24. mars n.k.
Woods breytir dagskrá sinni ekki oft en hann bætti við Honda Classic á síðasta ári. Það reyndist gæfuríkt því Tiger lék lokahringinn á 62 höggum, sem er lægsta skor ferils hans …. og náði næstum því Rory McIlroy, sem vann. Á Honda mótinu er Tiger nánast á heimavelli því hann býr þar rétt hjá, á Jupiter Island í Flórída. Á síðasta ári sagði hann m.a. að hann hefði gaman af því að keyra á völlinn heiman að frá sér í staðinn frá hóteli:
„Við ferðumst þó nokkuð í íþrótt okkar og við verjum miklum tíma í að ferðast. Þannig að það er alltaf gaman að geta verið heima og leikið. Mér finnst það frábært að hafa þetta tækifæri vegna þess að vinir og fjölskylda geta fylgst með manni. Við erum alltaf að ferðast. Þannig að það er gott að hafa hana (fjölskylduna) að horfa á og styðja mann.“
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022