Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2018 | 11:00

Tiger tekur líklega ekki þátt í TOC

Tiger Woods mun líklega ekki hefja 2019 keppnistímabilið í Hawaíí eftir allt saman.

Mikið hefir verið spáð og spekúlerað hvort Tiger muni spila í Sentry Tournament of Champions (TOC) í fyrsta sinn frá árinu 2005, en skv. nokkrum heimildarmönnum mun Tiger hafa ákveðið að sleppa mótinu, en hann ávann sér keppnisrétt á mótinu vegna sigurs síns á Tour Championship í september sl.

Í raun hefir Tiger enn til morgundagsins til þess að skipta um skoðun en þá lokar fyrir skráningu í mótið, sem hefst 3. janúar 2019 á Kapalua golfstaðnum í Maui í Hawaii. Tiger hefir ekki látið frá sér neina tilkynningu um þátttöku og hann er ekkert skulbundinn til þess heldur.

TOC er mót þar sem einungis sigurvegarar ársins 2018 á PGA Tour eiga keppnisrétt. Sigur Tiger á Tour Championship var 80. sigur Tiger á PGA Tour og þetta er í fyrsta sinn í 5 ár sem hann hefir keppnisrétt á TOC.

Talið er að meðal keppanda á TOC 2019 verði Dustin Johnson, Brooks Koepka, Justin Thomas, Bryson DeChambeau, Jon Rahm og Rory McIlroy. 

Talið er líklegra að fyrsta mót Tiger á PGA Tour 2019 verði Farmers Insurance Open, sem hefst 24. janúar 2019 á Torrey Pines, en það er mót sem Tiger hefir sigrað á 8 sinnum. Það er þar sem hann hefir hafið keppnistímabil sín oftast frá árinu 2006. Síðasta sinn sem hann spilaði í TOC var árið 2005 og þá varð hann T-3. Hann hefir aldrei verið lægri en meðal efstu 10, hefir m.a. sigrað tvívegis í TOC og verið sex sinnum meðal efstu 5 í þeim 8 mótum sem hann hefir tekið þátt í TOC.

Þar sem talið er aðð Tiger spili í færri en 18 mótum, sem hann tók þátt í 2018 þá virðist sem ekki væri vitlaust að byrja í Kapalua, þar sem ekki er um neinn niðurskurð að ræða og hann hlýtur FedEx Cup stig, Forseta bikars stig og stig á heimslistanum.

Tiger sagði á Hero World Challenge, þar sem hann er gestgjafi að hann hefði að sínu mati spilað í of mörgum mótum árið 2018 … sérstaklega í lok keppnistímabilsins og hann ætlar að fækka mótum 2019.

Ég ætla ekk að spila í eins mörgum (mótum) eins og ég gerí í ár (2018),“ sagði Tiger á Bahamas. „Ég spilaði í allt of mörgum (mótum) í ár og ….. það hefir tekið sinn toll. Ég ætla ekki að spila í eins mörgum og ég gerði (2018).

Tiger tók líka þátt í Rydernum og í Hero World Challenge, til viðbótar við mótin 18, 2018. Á sl. 10 árum hefir hann aðeins einu sinni spilað í fleiri mótum og það var árið 2012.

Langt ferðalag hans til Ástralíu eftir Hero mótið hefir líklega ekki aukið líkurnar á að hann byrji keppnistímabilið í Hawaii.

Tiger verður 43 ára,  30. desember n.k.