Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2016 | 16:30

Tiger snýr aftur í keppnisgolfið í febrúar 2017

Tiger Woods hefir tilkynnt að hann muni hefja 2017 keppnistímabilið á Genesis Open, á Riviera í Los Angeles.

Hinn 40 ára Tiger sem hóf PGA Tour feril sinn á sama móti 1992 þá 16 ára, er sagður ætla að sigra á mótinu í fyrsta sinn.

Hann hefir orðið í 2. sæti árin 1998 og 1999. Árið 1998 tapaði hann í bráðabana gegn Billy Mayfair. Þetta er enn eini ósigur Tiger í bráðabana til dagsins í dag.

Tiger sneri aftur í keppnisgolfið fyrr á þessum mánuði eftir að hafa verið frá keppni í yfir 1 ár. HInn 14-faldi risamótasigurvegari lauk keppni í 15. sæti á Hero World Challenge, þrátt fyrir að ná flestum fugla allra í keppninni.

Þegar tilkynnt var um þátttöku Tiger á Riviera virtist hann spenntur að taka þátt í móti, sem hann hefir ekki spilað í frá árinu 2006.

„Það er þarna sem það allt byrjaði hjá mér. Þetta var fyrsta PGA Tour mótið mitt. Ég var 16 ára… þetta breytti öllu lífi mínu.“

Það er Tiger Woods stofnunin sem styrkir mótið. Að spila í heimabæ sínum nk. febrúar er það sem Tiger vonar að verði það fyrsta af árangursríku keppnistímabili, þar sem Tiger er að öllu leyti heilbrigður, en hann hefir ekki gengið heill til skógar – verið hrjáður af bakverkjum.