Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2013 | 07:00

Tiger slær frá Asíu til Evrópu

Tiger Woods náði enn einum áfanganum í löngum og færsælum ferli sínum í Istanbúl, Tyrklandi í gær; þegar hann varð fyrsti kylfingurinn til þess að slá golfbolta frá austri til vesturs á Bosphorus brúnni

Tiger sló fullt af golfboltum fyrir framan alþjóðlegu og staðbundnu pressuna.

„Að vera fyrsti kylfingurinn til þess að gera þetta er mjög svalt,“ sagði hinn 14-faldi risamótameistari og nr. 1 á heimslistanum, sem þátt tekur í fyrsta móti Evrópumótaraðarinnar í Tyrklandi, Turkish Airlines Open, þar sem verðlaunapotturinn er $ 7 milljónir.

„Ég hef virkilega notið heimsóknar minnar til Istanbúl. Að sjá Bosphorus í fyrsta sinn var skemmtileg og minnisstæð reynsla,“ sagði Tiger.

Hengibrúin sem tengir heimsálfurnar og Tiger sló á er 1510 metra löng.  Henni var lokað frá einni hliðinni í 20 mínútur meðan Tiger sló högg sín. Brúin tengir bæina Beylerbeyi í Asíu og Ortaköy í Evrópu.  Brúin er eitt helsta einkennisleyti Istanbúl, borgar sem þekkt er fyrir ríka sögu sína.

Ahmet Ali Ağaoğlu, forseti tyrkneska golfsambandsins sagði þetta tækifæri : „Við erum ánægð að Tiger tók þátt í þessum sögulega atburði. Vera besta kylfings sögunnar í Tyrklandi er dásamleg fyrir prófæl og golfleikinn í landinu.“

Ömer Çelik, tyrkneskur ráðherra sem einnig var viðstaddur sögulegan boltasláttinn milli heimsálfanna sagði m.a.: „Það er heiður að bjóða Tiger velkominn til Istanbúl. Þetta sýnir fram á hæfileika Tyrklands til að laða að sér stærstu íþróttamennina í heiminum og við erum viss um að hann muni skemmta sér þessa viku.“

Tiger tekur þátt í Turkish Airlines Open sem styrkt er af ráðuneyti menningar og ferðamennsku í Tyrklandi en mótið er það síðasta fyrir lokamót Evrópumótaraðarinnar í Dubai. Þátttakendur í mótinu eru 78 bestu kylfingar heims, en mótið fer fram í the Montgomerie Maxx Royal í Belek og hefst á morgun.

Til þess að sjá myndskeið af því þegar Tiger sló milli heimsálfa af Bosphorus brúnni í Istanbúl 5. nóvember 2013 SMELLIÐ HÉR: