Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2018 | 16:45

Tiger mætir afslappaður til keppni á Tour Championship

Tiger Woods gekk nú rétt í þessu til búningsklefa en hann fer út eftir u.þ.b. 1 klukkustund.

Hann hefir 3 högga forystu á næstu keppendur sína Rory McIlroy og Justin Rose eftir 3. keppnisdag.

Spurningin sem brennur á öllum er hvort Tiger takist að næla sér í fyrsta PGA Tour sigur sinn frá árinu 2013?

Sjá má meðfylgjandi myndskeið þar sem Tiger gengur afslappaður til búningsklefa síns, með rauða Nike golfbolinn, sem hann hefir gert heimsfrægan.

Skyldi sigurvegari Tour Championship 2018 klæðast rauðum Nike golfbol?

https://www.instagram.com/p/BoEycdQF4-z/?taken-by=golfmagic.com_