Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2018 | 20:00

Tiger í fyrsta skipti í bandaríska Ryder liðinu frá 2012

Jim Furyk, fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Ryder bikarnum tilkynnti um „villtu kortin sín“ (ens. wild cards).

Sem fyrirliði fær Furyk að velja 3 í liðið, sem ekki hljóta vera í liðinu með sjálfkrafa hætti.

Val Furyk voru Tiger Woods, Phil Mickelson og Bryson DeChambeau.

Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2012 sem Tiger er í bandaríska Ryder bikars liðinu.

Aðrir leikmenn í bandaríska liðinu 2018 eru eftirfarandi: Brooks Koepka, Bubba Watson, Dustin Johnson, Jordan SpiethJustin Thomas, Patrick Reed,  Rickie Fowler og Webb Simpson.