Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2016 | 18:00

Tiger gat varla gengið … og þá fékk hann Bugs, til þess að einbeita sér að e-hv jákvæðu!

Það er mikilvægt að halda sér jákvæðum í golfi og enginn veit það betur en fyrrum nr. 1 á heimslistanum, sem nú er dottinn niður í 448. sætið á heimslistanum.

NBC Sports birti frétt þess efnis um jólin að Tiger gæti varla gengið og væri mörg ár frá því að sigra aftur (á golfmóti) og framtíð hans virtist köld sbr. neðangreint tvít.

Tvít NBC var svohljóðandi: „Barely able to walk and years away from his last win, Tiger Woods faces a cold future.“)

En Tiger kom fram í fjölmiðlum um jólin og benti á allt það sem væri jákvætt í lífi hans börnin hans Sam og Charlie og „nýjasta fjölskyldumeðliminn“, hvolpinn  Bugs.

Tiger tvítaði í mesta svartnætti s.l. jóla:

„We would like to welcome a new member to our family/pack:), Bugs!!!!“

Kannski það hafi verið hvolpurinn Bugs sem hjálpaði Tiger í gegnum mesta svartnættið.

Tiger hefir gengið í gegnum 3 uppskurði á sl. tveimur árum til þess að lagfæra bakið á sér, en batinn tekur langan tíma. Svo er líka spurning hvort Tiger geti haldið uppi mótivasjóninni og vilji keppa langt á fimmtugsaldurinn.

Bara hann veit hvað hann vill innst inni,“ sagði Mark O’Meara vinur Tiger á GolfChannel.com. „Að verða 40 ára með þetta líf sem hann hefir lifað og alla peressuna og smásjánna sem hann hefir verið undir, þá eru ekki margar mannlegar verur sem hafa upplifað það sem hann hefir. Og í lok dags erum við enn öll manneskjur og manneskjur geta aðeins tekið svo og svo mikið.

Kannski Bugs hafi hjálpað till við að mótivera Tiger þ.e. halda Tiger við efnið – a.m.k. hefir Tiger sjálfur sagt í viðtölum að hann sé ekki hættur … langt frá því!