Hér einu sinni vildu allir í Ryder Cup liði Evrópu spila á móti Tiger …. því það væri góður dagur ef sigur næðist en allir byggjust hvort eð er við því að hann ynni og þá væri tap ekkert slæmt – Monty telur Rory vera í sömu stöðu nú Tiger farinn að taka fulla sveiflu aftur!
Endurkoma Tiger Woods í keppnisgolfið virðist vera á áætlun af því að hann er farinn að taka fulla sveiflu, í undirbúningi fyrir mótið þar sem hann verður gestgjafi, 4.-9. desember í Orlando, Flórída.
Tiger, sem gert hefir öllum ljóst að hann ætli sér að spila í Hero World Challenge, í fyrrum klúbbi sínum í Orlando, Islesworth, byrjaði að slá í síðustu viku skv. USA Today
„Læknarnir hafa sagt að hann geti slegið aftur og hann er að hlusta á lækna sína og líkama,“ sagði umboðsmaður Tiger, Mark Steinberg, dagblöðum í gær … „og honum líður býsna vel.“
Tiger var orðinn ansi pirraður með leik sinn eftir að hann átti tvo hringi upp á 74 og komst ekki í gegnum niðurskurð á PGA Championship s.l. ágúst. Hann sagði eftir á að hann hefði tekið ákvörðun að spila ekki í neinu móti þar til hann væri búinn að vinna með þjálfurum sínum í að koma líkama sínum aftur í form.
„Það er ekki hægt að brenna kertið í báða enda,“ sagði Tiger.
Eftir þetta viðtal sneri Tiger heim til Jupiter Island í Flórida og hefir ekki sést opinberlega síðan. Golfheimurinn bíður spenntur eftir endurkomu hans í desember, en þar á eftir er búist við að hann tilkynni dagskrá sína fyrir 2015.
Tiger á 39 ára afmæli 30. desember og spilaði aðeins í 7 mótum á s.l. ári og átti aðeins 1 topp-25 árangur í Doral snemma í mars. Eftir það gekkst hann undir bakuppskurð, sem olli því að hann gat ekkert spilað þar til í júní, en á fyrsta móti sínu eftir uppskurðinn, í Washington, D.C., Quicken Loans Open. komst hann aftur ekki í gegnum niðurskurð.
Eftir það varð hann T-69 á Opna breska og dró sig úr Bridgestone Invitational eftir 3 hringi.
Tiger hefir ekki gefið upp á bátinn að slá við met 18 falda risamótameistarans Jack Nicklaus. Síðasta risamót sem Tiger sigraði á var hins vegar Opna bandaríska fyrir 6 árum – og risamótin sem hann hefir sigrað eru orðin 14.
Talið er, á þessari stundu, að afar erfitt verði fyrir hann að slá met Nicklaus með öllum þeim frábæru og ómeiddu kylfingum sem eru þarna úti á heimsvísu í dag. Mun líklegra, ef eitthvað, er að hann muni jafna metið.
En hvað verður er skrifað í skýin …. og kannski erfitt að meta það fyrr en allir sjá hvort Tiger hefir náð sig eftir bakuppskurðinn þegar hann snýr aftur til keppni nú í desember.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
