Lindsey Vonn og Tiger Woods meðan allt lék í lyndi og þau voru ástfangin upp yfir haus
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2013 | 18:00

Tiger: „Ég er nörd“

Margir héldu niðr´í sér andanum þegar  Lindsey Vonn kallaði Tiger Woods aula (ens.: dork) í viðtalsþætti hjá Katie Couric í síðustu viku (Sjá umfjöllun Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:), en nr. 1 á heimslistanum (Tiger) brosti bara þegar blaðamenn báru ummælin undir hann.

Lindsey og Tiger hafa nú verið saman í næstum ár og það er greinilegt að þeim finnst gaman að grínast hvert í öðru.

„Liðsfélagar mínir í háskóla kölluðu mig „Urkel“ sagði Tiger.  (Svona til skýringar fyrir þá sem ekki vita það þá er með Urkel átt við  Steven Quincy Urkel, sem er svartur strákur, í bandarísku ABC/CBS sjónvarpsþáttaröðinni „Family Matters.“ Urkel er leikinn af Jaleel White og hefir orðið samheiti fyrir nörda, með þykk svört gleraugu, í buxum sem haldið er uppi af axlaböndum, alltaf í mörgum lögum af skrítnum skræpóttum peysum og með háa rödd.“  Urkel var engu að síður langvinsælasta persónan og líklega eftirminnilegasta og sú sem hefir lifað lengst með Bandaríkjamönnum.

 „Ég á mér svona nördalega hlið,“ sagði Tiger ennfremur. Það er líklega þess vegna sem ég komst inn í Stanford.“

Um muninn á golfi og skíðaíþróttinni sagði Tiger: „Maður lítur á nokkra af strákunum á túrnum og þeir eru svaka hugaðir en geta varla náð andanum þegar þeir fara á teig, en þeir geta eftir sem áður sigrað í golfmótum. Í hennar íþrótt (skíðaíþróttinni), ef maður er ekki næstum því 100% þá sigrar maður ekki.“

Um keppnisskap þeirra beggja hafði Tiger loks eftirfarandi að segja: „Ég held að það sé bara ein af ástæðunum fyrir að okkur kemur svo vel saman.“