Tiger ásamt Elínu og Lindsey á boltaleik sonar síns
Svo virðist sem allt sé í besta lagi hjá Woods fjölskyldunni; allir vinir og allt í sátt og samlyndi.
Þannig sást nú nýlega til hins bakþjáða Tiger , sem er að kosta golfheiminn milljarða með fjarveru sinni frá keppnisgolfi, þar sem hann var ásamt báðum konum sínum, þ.e. fyrrverandi eiginkonu sinni, Elínu Nordegren og núverandi kærustu sinni, skíðadrottningunni, Lindsey Vonn, þar sem þau voru öll að horfa á hafnaboltaleik Charlie sonar Elínar og Tiger.
Þrenningin sat saman á leikvangi í Flórída og sagði heimildarmaður að Woods og Nordegren hefðu „hegðað sér vel… jafnvel verið vingjarnleg“ hvort við annað.
Sambandið endaði illa hjá Tiger og Elínu vegna framhjáhalda Tiger, sem upp komst árið 2009.
Að sögn annarra heimildarmanna vill Elín kynnast Lindsey betur þar sem hún mun jú verja einhverjum tíma með börnum hennar, Sam og Charlie.
Einn heimildarmaður US Weekley sagði jafnvel: „Það virðist skrítið en Elínu er mjög vel við Lindsey og þær tala saman allan tímann.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
