Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2015 | 09:00

Thelma Björt stigameistari telpna á Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015

Thelma Björt Jónsdóttir, úr golfklúbbnum Keili var heiðruð á Uppskeruhátíð GSÍ, sem fram fór í Laugardalnum 28. október 2015 s.l. þar sem hún varð stigameistari telpna, 15-16 ára, á Áskorendamótaröð Íslandsbanka.

Efstu telpur á stigalista Áskorendamótaraðar Íslandsbanka voru eftirfarandi:

Telpnaflokkur, 15-16 ára:

1. Thelma Björt Jónsdóttir, GK, 4500.00 stig.
2. Andrea Nordquist Ragnarsdóttir, GR, 2400.00 stig.
3. Íris Mjöll Jóhannesdóttir, GKG,  1500.00 stig.

Thelma Björt sigraði í 3 fyrstu mótum Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015; þ.e. því fyrsta á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni; á 2. mótinu á Svarfhólsvelli  á Selfossi og í því 3. á  Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

Andrea og Thelma Björt og fulltrúi GSÍ. Mynd: GSÍ

F.v.: Verðlaunahafar í telpnaflokki á 1. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015: f.v.: Andrea, GR í 2. sæti  og Thelma Björt, GK sigurvegari og fulltrúi GSÍ. Mynd: GSÍ

Á fyrsta móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni sigraði Thelma Björt Jónsdóttir, GK, á 26 yfir pari, 98 höggum. Í 2. sæti varð 2 Andrea Nordquist Ragnarsdóttir GR á 34 yfir pari,

Thelma Björt Jónsdóttir, GK á 2. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015 á Svarfhólsvelli. Mynd: Golf 1

Thelma Björt Jónsdóttir, GK á 2. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 2015 á Svarfhólsvelli. Mynd: Golf 1

Thelma Björt sigraði á 2. mótinu á Áskorendamótaröð Íslandsbanka, sem fram fór á Svarfhólsvelli á Selfossi.

Andrea í 2. sæti, Thelma Björt sigurvegari 3. móts Áskorendamótaraðar Íslandsbanka og Guðmundur, framkvæmdastjóri GSG. Mynd: GSÍ

Andrea í 2. sæti, Thelma Björt sigurvegari 3. móts Áskorendamótaraðar Íslandsbanka og Guðmundur, framkvæmdastjóri GSG. Mynd: GSÍ

Á 3. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Kirkjubólsvelli í Sandgerði sigraði Thelma Björt og Andrea, GR, varð í 2. sæti.

Íris Mjöll sigurvegari f.m.

Íris Mjöll sigurvegari f.m.

Enginn þátttakandi var í 4. og 5. móti í telpnaflokki á Áskorendamótaröð Íslandsbanka og er það miður því Áskorendamótaröðin er svo fínn keppnisvettvangur!

Íris Mjöll Jóhannesdóttir, GKG sigraði á 6. og síðasta móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Nesvelli 5. september 2015.  Thelma og Andrea tóku ekki þátt í mótinu.