Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2016 | 09:00

The Masters 2016: Spieth efstur 3. daginn í röð

Jordan Spieth sýnir yfirburði sína á The Masters og myndi engum koma á óvart þó hann stæði uppi sem sigurvegari í kvöld!

Hann er búinn að spila hringina 3 á The Masters á samtals 3 undir pari, 213 höggum (66 74 73).

En Spieth verður að klára og a.m.k. einn baneitraður á hæla hans, þar sem er gamla brýnið Bernhard Langer.

Að vísu er Langer „ekki nema“ í 3. sæti á samtals 1 undir pari og því 2 höggum á eftir Spieth, en hann hefir langtum meiri leikreynslu á Augusta en nýliðinn Smylie Kaufman, sem búinn er að tylla sér í 2. sætið og er á hæla Spieth, aðeins 1 höggi á eftir.

Spurningin er hvort Spieth takist að halda haus; flestir eru á því; honum tókst það í fyrra eða hvort það verði reynslan (Langer – sem jafnframt er elsti þátttakandinn í mótinu) eða Smylie Kaufman, sem er óhræddur, hefir ekkert að tapa og hefir auk þess sprengikraft og er framagjarn!

Sjá má stöðuna á The Masters með því að SMELLA HÉR: