
The Masters 2012: Peter Hanson í forystu fyrir lokahring Mastersmótsins
Það er Svíinn Peter Hanson, sem er í forystu fyrir lokahring The Masters. Hanson var á lægsta skorinu í gær, á 3. hring The Masters, 65 höggum. Hanson fékk 8 fugla og 1 skolla á 1. braut. Hanson er búinn að spila á samtals -9 undir pari, samtals 207 höggum (68 74 65).
Á hæla Hanson er Phil Mickelson, aðeins 1 höggi á eftir. Mickelson fékk 4 fugla (m.a. einn á 15. braut!) og einn örn!!! og það á þeirri þriðju af „Amen Corner“ (Azalea), Alparósarbrautinni. Samtals er Mickelson búinn að spila á samtals -8 undir pari, samtals 208 höggum (74 68 66).
Í 3. sæti er Louis Oosthuizen, á samtals -7 undir pari; í 4. sæti er Bubba Watson, á samtals -6 undir pari og í 5. sæti er Matt Kuchar á samtals -5 undir pari.
Fjórir kylfingar deila síðan 6. sætinu á samtals -4 undir pari: Lee Westwood, Pádraig Harrington, Henrik Stenson og Hunter Mahan. Það er síðan Skotinn Paul Lawrie, á samtals -3 undir pari, sem er einn í 10. sæti.
Það verður spennandi að sjá hver stendur uppi sem sigurvegari á The Masters á lokahringnum í kvöld!
Til að sjá stöðuna eftir 3. dag The Masters smellið HÉR:
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023