Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 17:30

Þáttur á FOX um Gullna Björninn á morgun – Myndskeið

Jack Nicklaus eða m.ö.o. „Gullni Björninn“ hafði yfirburði í golfinu í áratugi og setti á þeim tíma met sem kannski verða aldrei slegin.

Þann 21. janúar n.k. verður Nicklaus 75 ára.

Í tilefni af þessu stórafmæli og til að halda upp á feril Jack hefir USGA, þ.e. bandaríska golfsambandið í samvinnu við Rolex gert þátt sem ber nafnið „Nicklaus: The Making of a Champion“ og verður hann sýndur á FOX sjónvarpsstöðinni á morgun í Bandaríkjunum, sunnudaginn 18. janúar kl. 12:00 EST þ.e. á austurstrandar tíma.

Í þættinum kemur m.a. Tiger Woods fram og hefir vakið athygli að hann segir á einum stað að enginn hafi gert það eins vel og Jack Nicklaus í golfinu.

Sjá má myndskeið úr þættinum með því að SMELLA HÉR: