Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2014 | 10:00

Telur Chris Kirk sig koma til greina í Ryder Cup liðið?

Chris Kirk vann sinn stærsta sigur á ferlinum í gær þegar hann sigraði á Deutsche Bank Championship.

Enn skyldi þessi sigur nægja fyrirliða bandaríska Ryder Cup liðsins, Tom Watson,  þegar hann tilkynnir um val sitt á þeim þremur, sem hann fær að velja í liðið í New York í kvöld?

Hvað finnst Kirk um það sjálfum? Aðspurður um einmitt þetta atriði svaraði Kirk:

„Mér finnst ég ekki eiga neinn rétt á sæti, eða eins og mér hafi tekist að koma fæti inn til þess að verða valinn,“ sagði hann, sem lauk keppni í gær á Deutsche Bank meistaramótinu á samtals 15 undir pari, 269 höggum. „Ég hef augljóslega virkilega komið sjálfum mér í þá stöðu að koma til greina, og það myndi ég gjarnan vilja.  En eins og ég hef sagt áður, 9 strákar sem eru komnir í liðið komust þangað sjálfkrafa.  Þeir mynda kjarna liðsins. Hinir 3? Ef maður kemst í liðið er það bónus.“

Síðan leit Kirk á bláu dolluna við hlið sér og það virtist renna upp fyrir honum hvað hann hefði eiginlega afrekað.

„Að hafa sigrað á Deutsche Bank og verða nr. 1 í FedEx Cup móti og fá 1.4 milljónir bandaríkjadala, það er nóg fyrir mig á einum degi,“ sagði Kirk brosandi.

En í dag er nýr dagur – skyldi hann verða val Watson? Flestum þykir það ólíklegt – Margir aðrir sterkir eins og Keegan Bradley, Webb Simpson (sem stóð sig reyndar vel í Deutsche Bank(varð í 9. sæti)  og er hærra rankaður á heimslistanum en Kirk), Hunter Mahan, Bill Haas ofl. ofl. sem koma til greina.

En samt aldrei að vita hvað Watson gerir – eftir allt var Kirk í ráshóp með heimsins besta, Rory McIlroy, og hafði betur! Hver vill ekki hafa þannig strák í liði sínu?