Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2020 | 23:45

Symetra: Ólafía T-32 e. 1. dag í Flórída

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, tekur þátt í Florida´s Natural Charity Classic mótinu, sem er hluti af Symetra mótaröðinni, 2. deildinni hjá konunum í Bandaríkjunum.

Ólafía hefir gefið út að hún ætli að halda sig við keppni í Bandaríkjunum þetta keppnistímabil en góður árangur á Symetra getur leitt til spilaréttar á LPGA.

Mótið fer fram í Winter Haven, Flórída, dagana 6.-8. mars 2020.

Ólafía Þórunn lék 1. hring á sléttu pari, 72 höggum og er T-32. Á hringnum fékk hún 3 fugla og 3 skolla.

Sjá má stöðuna á Florida´s Natural Charity Classic mótinu með því að SMELLA HÉR: