Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2014 | 15:00

Sveitakeppni GSÍ: Sveit Keilismanna í 1. deild Íslandsmeistarar 2014

Það var sveit Keilismanna sem varði titil sinn frá árinu áður og er Íslandsmeistari í Sveitakeppni GSÍ annað árið í röð!!!!

Íslandsmeistarasigursveit GK 2014

Íslandsmeistarasigursveit GK 2014. Lengst t.h. liðsstjórinn Björgvin Sigurbergsson. 

Keilissveitina 2014 skipuðu þeir:

Axel Bóasson

Benedikt Árni Harðarson

Benedikt Sveinsson

Birgir Björn Magnússon

Gísli Sveinbergsson

Henning Darri Þórðarson

Ísak Jasonarson

Rúnar Arnórsson

Liðsstjóri: Björgvin Sigurbergsson

Úrslitaleikur GK var við karlasveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.  Þar vann Gísli Sveibergsson GKviðureign sína við Sigmund Einar Másson GKG 2&1; Axel Bóasson GK vann Alfreð Brynar Kristinsson, GKG 4&3 og Rúnar Arnórsson GK, vann Ara Magnússon, GKG einnig 4&3.  Þrír vinningar því í hús fyrir karlasveit GK og Íslandsmeistarartitillinn í höfn!!!

Þeir sem héldu uppi heiðri GKG voru Kristófer Orri og Aron Snær sem unnu þá Birgi Björn, GK og Henning Darra, GK í fjórmenningi sem og Íslandsmeistarinn í höggleik 2013 og 2014, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, sem vann viðureign sína í tvímenningnum gegn Benedikt Sveinssyni, GK, 4&3.

Sveit GB 2014

Sveit GB 2014

Leikur um 3. sætið í 1. deild karla var líka æsispennandi, en þar mættust sveit Golfklúbbs Borgarness og Sveit Golfklúbbsins Setbergs í Hafnarfirði.  Þar gulltryggði framkvæmdastjóri GB Jóhannes Ármannsson, 3. sætið fyrir sína sveit í tvímenningsleik sínum gegn Ragnari Ragnarssyni, GSE, en viðureign þeirra fór á 19. holu.

Lokastaðan í 1. deild karla í Sveitakeppni GSÍ  2014 var eftirfarandi:

1. sæti Sveit GK

2. sæti Sveit GKG

3. sæti Sveit GB

4. sæti Sveit GSE

5 sæti Sveit GR

6. sæti Sveit GS

Sveit GS rétt marði að halda sér í 1. deild!!!

Sveit GS rétt marði að halda sér í 1. deild!!!

Sveitir NK (sem varð í 7. sæti) og sveit GL (sem varð í 8. sæti) eru fallnar í 2. deild.