Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2014 | 20:00

Sveitakeppni GSÍ: Sveit GKJ sigraði í 2. deild karla!

Það var sveit Golfklúbbsins Kjalar (GKJ), sem sigraði í 2. deild karla í Sveitakeppni GSÍ.

Sigursveit GKJ skipuðu eftirfarandi:

Theódór Emil Karlsson

Dagur Ebenezerson

Davíð Gunnlaugsson

Björn Óskar Guðjónsson

Gísli Ólafsson

Jón Hilmar Kristjánsson

Aron Skúli Ingason

Stefán þór Hallgrímsson

Liðsstjóri: Eyjólfur Kolbeins

Úrslitaleikurinn fór fram milli GKJ og Golfklúbbs Ólafsfjarðar (GÓ) og var viðureignin æsispennandi allt til síðasta pútts.

Báðar sveitir leika í 1. deild að ári. GKJ vann með 3 vinningum gegn 2.

Theodór Emil Karlsson, GKJ vann leik sinn gegn Grím Þórissyni, GÓ, en leikur þeirra fór á 20. holu.  Jón Hilmar Krisjánsson, GKJ sigraði golfkenaranum Ólaf Auðunni Gylfasyni GÓ og stóð einnig afar tæpt í þeim leik, sem fór á 19. holu. Björn Óskar Guðjónsson, GKJ, vann einnig sína viðureign gegn Bergi Rúnari Björnssyni, GÓ 4&3.

Ólafsfirðingar unnu fjórmenninginn – en sigurvegarar þar voru Þorgeir Örn Sigurbjörnsson, GÓ og Sigurður Pétursson, GÓ sem unnu þá Davíð Gunnlaugsson, GKJ og Gísla Ólafsson,  GKJ, 1&0.   Eins vann Sigurbjörn Þorgeirsson, GÓ viðureign sína í tvímenningnum gegn Dag Ebenezerssyni nokkuð örugglega eða 4&2.

Lokastaðan í 2. deild karla er eftirfarandi:

1. sæti GKJ
2. sæti GÓ
3. sæti GV
4. sæti GG
5. sæti GJÓ
6. sæti GKB

Sveit GKB tókst að halda sér í 2. deild á heimavelli sínum - hinum gullfallega Kiðjabergsvelli

Sveit GKB tókst að halda sér í 2. deild á heimavelli sínum – hinum gullfallega Kiðjabergsvelli

Golfklúbbur Akureyrar (GA, sem varð í 7. sæti) og Golfklúbburinn Hellu Rangárvöllum (GHR, sem varð í 8. sæti) leika í 3. deild að ári.