Sveitakeppni GSÍ eldri kylfinga 2014: GK og GS leika um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild
Sveitakeppni GSÍ í flokki eldri kvenna í 1. deild fer fram á Húsatóftavelli í Grindavík.
Það eru alls 8 klúbbar sem eru með sveitir í 1. deild eldri kvenna: GR, GK, GKJ, NK, GKG, GS, GO og GÖ.
Leikið var í 2 riðlum: A- og B-riðlum.
Staðan í A-riðli var eftirfarandi eftir 3 umferðir:
1. sæti Nesklúbburinn – 10 innbyrðis sigrar
2. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur – 10 innbyrðis sigrar
3. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar – 6 innbyrðis sigrar
4. sæti Golfklúbbur Öndverðarness – 4 innbyrðis sigrar
Staðan í B-riðli var eftirfarandi eftir 3 umferðir:
1. sæti Golfklúbburinn Keilir – 11 innbyrðis sigrar
2. sæti Golfklúbbur Suðurnesja – 7 innbyrðis sigrar
3. sæti Golfklúbburinn Kjölur – 7 innbyrðis sigrar
4. sæti Golfklúbburinn Oddur – 5 innbyrðis sigrar
Í 4. umferð var leikið um hvaða lið myndu mætast í úrslitum. Þar fóru leikar á eftirfarandi máta.
1. leikur í 4 umferð:
4. sæti í A-riðli lék við 3. sæti í B-riðli þ.e. leikur sveitar GÖ við sveit GKJ. Leikurinn fór svo að sveit GKJ sigraði 3-2
Ella Rósa Guðmundsdóttir, GKJ og Guðrún Leósdóttir, GKJ unnu fjórmenningsleik sinn á móti þeim Hafdísi Gunnlaugsdóttur, GÖ og Björk Ingvarsdóttur, GÖ 1&0. Í tvímenningsleikjunum unnu Margrét Óskarsdóttir, GKJ og Rut Héðinsdóttir, GKJ viðureignir sínar.
2. leikur í 4. umferð:
3. sæti í A-riðli lék við 4. sæti í B-riðli þ.e. leikur sveitar GKG við sveit GO. Leikurinn fór svo að sveit GKG sigraði 3-2
Í sveit GKG vannst sigur í 4. umferð í 3 tvímenningsleikjum þ.e. Elísabet Böðvarsdóttir, GKG; María Málfríður Guðnadóttir, GKG og Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, GKG unnu viðureignir sínar.
3. leikur í 4. umferð:
2. sæti í A-riðli lék við 1. sæti í B-riðli þ.e. leikur sveitar GR við sveit GK. Leikurinn fór svo að sveit GK sigraði 3-2
Sveit GK vann fjórmenningsleik sinn gegn GR en það voru þær Kristín Sigurbergsdóttir, GK og Margrét Berg Theódórsdóttir, GK sem unnu „Jóhönnurnar“ í GR þ.e. Bárðardóttur og Waagfjörð 3&2. Helga Gunnarsdóttir, GK vann Stefaníu Margréti Jónsdóttur, GR 1&0; Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK vann síðan Ásgerði Sverisdóttur, GR 1&0. Þær sem héldu uppi heiðri GR voru Steinunn Sæmundsdóttir, sem vann viðureign sína gegn Erlu Adolfsdóttur, GK 3&2 og Guðrún Garðars sem vann viðureign sína gegn Sigrúnu Margréti Ragnarsdóttur líka 3&2.
4. leikur í 4. umferð:
1. sæti í A-riðli lék við 2. sæti í B-riðli þ.e. leikur sveitar NK við sveit GS. Leikurinn fór svo að sveit GS sigraði 3-2
Sigur sveitar GS kom í 3 tvímenningsleikjum þ.e. Eygló Geirdal, GS vann viðureign sína gegn Þuríði Halldórsdóttur, NK 2&1; Elín Gunnarsdóttir, GS vann viðureign sína gegn Áslaugu Einarsdóttur, NK 1&0 og Hafdís Ævarsdóttir, GS vann viðureign sína gegn Þyrí Valdimarsdóttur 2&1. Þeir leikir NK sem unnust voru fjórmenningsleikurinn en þar sigruðu þær Oddný Rósa Halldórsdóttir, NK og Jórunn Þóra Sigurðardóttir NK þær Helgu Sveinsdóttur og Ólafíu Sigurbergsdóttur á 19. holu. Síðan vann Ágústa Dúa Jónsdóttir, NK andstæðing sinn í tvímenningnum, Magdalenu Sirrý Þórisdóttur, GS með miklum yfirburðum 6&5.
Allt í allt má segja að leikir í 4. umferð í 1. deild eldri kvenna í sveitakeppni GSÍ 2014 hafi verið jafnir og spennandi.
Úrslitaleikir í 5. umferð eru því eftirfarandi:
Leikur um 1. sætið Sveit GK-Sveit GS
Leikur um 3. sætið Sveit GR-Sveit NK
Leikur um 5. sætið Sveit GKG-Sveit GKJ
Leikur um 7. sætið Sveit GO- Sveit GÖ
Keppnissveitirnar eru skipaðar eftirfarandi leikmönnum:
| Golfklúbbur Reykjavíkur | ||
| Ásgerður Sverrisdóttir | ||
| Guðrún Garðars | ||
| Jóhanna Bárðardóttir | ||
| Margrét Geirsdóttir | ||
| Stefanía Margrét Jónsdóttir | ||
| Steinunn Sæmundsdóttir | ||
| Rakel Kristjánsdóttir | ||
| Jóhanna S. Waagfjörð | ||
| Helga Harðardóttir | ||
| Liðsstjóri: Halldór B. Kristjánsson | ||
| Golfklúbburinn Keilir | ||
| Anna Snædís Sigmarsdóttir | ||
| Erla Adolfsdóttir | ||
| Helga Gunnarsdóttir | ||
| Jónína Kristjánsdóttir | ||
| Kristín Sigurbergsdóttir | ||
| Margrét Sigmundsdóttir | ||
| Margrét Berg Theódórsdóttir | ||
| Sigrún Margrét Ragnarsdóttir | ||
| Liðsstjóri: Anna Snædís Sigmarsdóttir | ||
| Aðstoðarliðsstjóri: Þórdís Geirsdóttir | ||
| Golfklúbburinn Kjölur | ||
| Auður Ósk Þórisdóttir | ||
| Dagný Þórólfsdóttir | ||
| Ella Rósa Guðmunsdóttir | ||
| Guðrún Leósdóttir | ||
| Margrét Óskarsdóttir | ||
| Petrún Björg Jónsdóttir | ||
| Rut M. Héðinsdóttir | ||
| Þuríður Pétursdóttir | ||
| Liðsstjórar: Guðrún Leósdóttir og Rut M. Héðinsdóttir | ||
| Nesklúbburinn | ||
| Ágústa Dúa Jónsdóttir | ||
| Áslaug Einarsdóttir | ||
| Jórunn Þóra Sigurðardóttir | ||
| Kristín Erna Gísladóttir | ||
| Oddný Rósa Halldórsdóttir | ||
| Þuríður Halldórsdóttir | ||
| Þyrí Valdimarsdóttir | ||
| Liðsstjóri: Ágústa Dúa Jónsdóttir | ||
| Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | ||
| Áslaug Sigurðardóttir | ||
| Bergljót Kristinsdóttir | ||
| Elísabet Böðvarsdóttir | ||
| Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir | ||
| Jónína Pálsdóttir | ||
| María Málfríður Guðnadóttir | ||
| Sigríður Olgeirsdóttir | ||
| Hanna Bára Guðjónsdóttir | ||
| Liðsstjóri: María Málfríður Guðnadóttir | ||
| Golfklúbbur Suðurnesja | ||
| Magdalena Sirry Þórisdóttir | ||
| Hafdís Ævarsdóttir | ||
| Ólafía Sigurbergsdóttir | ||
| Helga Sveinsdóttir | ||
| Ingibjörg Bjarnadóttir | ||
| Eygló Geirdal | ||
| Elín Gunnarsdóttir | ||
| Liðsstjóri Magdalena Sirry Þórisdóttir | ||
| Golfklúbburinn Oddur | ||
| Aldís Björg Arnardóttir | ||
| Ágústa Arna Grétarsdóttir | ||
| Erla Pétursdóttir | ||
| Hlíf Hanssen | ||
| Hulda Hallgrímsdóttir | ||
| Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir | ||
| Magnhildur Baldursdóttir | ||
| Margrét Aðalsteinsdóttir | ||
| Sif Haraldsdóttir | ||
| Liðsstjóri: Hulda Hallgrímsdóttir | ||
| Golfklúbbur Öndverðarnes | ||
| Rósa Guðmundsdóttir | ||
| Birna Stefnisdóttir | ||
| Hafdís Gunnlaugsdóttir | ||
| Guðrún Guðmundsdóttir | ||
| Björk Ingvarsdóttir | ||
| Bryndís Þorsteinsdóttir | ||
| Þuríður Jónsdóttir | ||
| Soffía Björnsdóttir | ||
| Katrín Hermannsdóttir | ||
| Liðsstjóri: Kristín Þorvaldsdóttir |
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
