
Sveitakeppni eldri kylfinga: GA-ingar eru Íslandsmeistarar í 1. deild eldri karla
Sveitakeppni eldri kylfinga fór fram s.l. helgi. Sveitir í fyrstu deild karla eldri kylfinga spiluðu Selsvöll að Flúðum.
Það er Golfklúbbur Akureyrar, sem er Íslandsmeistari í sveitakeppni 1. flokks eldri kylfinga í karlaflokki 2012!!!
Í gull-sveit Íslandsmeistara GA-inga í sveitakeppni GSÍ 2012 – 1. flokki eldri karla eru þeir: Bjarni Ásmundsson, Björgvin Þorsteinsson, Hafberg Svansson, Haraldur Júlíusson, Sigurður H. Ringsted, Viðar Þorsteinsson, Þórhallur Pálsson og Þórir V. Þórisson. Sveit
GA sigraði sveit GR í hörkuspennandi úrslitaleik um 1. sætið og Íslandsmeistaratitilinn. Leikar fóru svo að sveit GA vann 3-2. Leikir GA sem unnust voru fjórmenningurinn þar sem Sigurður H. Ringsted og Bjarni Ásmundsson unnu Hörð Sigurðsson og Rúnar S. Gíslason, í GR naumt 1&0. Síðan sigraði GA í tveimur tvímenningsleikjanna, en Viðar Þorsteinsson vann Skarphéðinn Skarphéðinsson 3&2 og Haraldur Júlíusson vann Óskar Sæmundsson 4&3.
Silfur-sveit GR var skipuð þeim: Garðari Eyland, Herði Sigurðssyni, Jóni Hauki Guðlaugssyni, Óskari Sæmundssyni, Rúnari S. Gíslasyni, Sigurði Hafsteinssyni, Skarphéðni Skarphéðinssyni og Sæmundi Pálssyni.
Í baráttunni um 3. sætið hafði Nesklúbburinn betur gegn sterku liði Golfklúbbsins Keilis, þar sem ekkert féll með Keilismönnum. T.a.m. vann NK fjórmenninginn naumt á 19. holu.
Golfklúbbi Öndverðarness tókst að halda sér í 1. deild en þá sveit skipuðu: Guðjón Snæbjörnsson, Guðmundur Arason, Guðmundur E. Hallsteinsson, Kristján W. Ástráðsson, Ólafur Jónsson, Stefán Gunnarsson, Trausti R. Hallsteinsson og Þorsteinn Þorsteinsson.
Það voru sveitir GO og GS sem féllu í 2. deild.
Úrslit í sveitakeppni GSÍ – 1. deild eldri karla voru eftirfarandi:
1. deild karla eldri kylfinga:
1. Golfklúbbur Akureyrar
2. Golfklúbbur Reykjavíkur
3. Nesklúbburinn
4. Golfklúbburinn Keilir
5. Golfklúbbur Vestmannaeyja
6. Golfklúbbur Öndverðaness
7. Golfklúbbur Suðurnesja
8. Golfklúbburinn Oddur
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024