Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2017 | 19:00

Sveit GR í 12. sæti e. 2. dag Evrópumóts golfklúbba

Annar hringur Evrópumóts golfklúbba (2017 European Ladies Club Trophy) var leikinn í dag, í Slóvakíu.

Með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í sumar tryggði kvennalið Golfklúbbs Reykjavíkur sér keppnisrétt á mótinu.

Mótið fer fram á Welten vellinum í Bac og þátttakendur eru 45 í 16 liðum og verða leiknir þrír hringir, dagana 5.-7. október 2017.

Það eru þær Halla Björk Ragnarsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Berglind Björnsdóttir, sem keppa í Slóvakíu og liðsstjóri þeirra er Ingi Rúnar Gíslason.

Eftir 2. dag er GR í 12. sæti í liðakeppninni.

Berglind er búin að spila á 10 yfir pari, 154 höggum (77 77) og er T-14.

Halla Björk bætti sig um 5 högg í dag, hefir samtals spilað á 23 yfir pari, 167 höggum (86 81)

Jóhanna Lea hefir leikið á samtals 29 yfir pari, 173 höggum (86 87).

Sjá má stöðuna eftir 2. dag á Evrópumóti golfklúbba með því að SMELLA HÉR: