Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 19:30

Golfútbúnaður: Suzann Pettersen þróar nýjan golfskó í samvinnu við Nike

Að golfskór þrengi hvergi að og séu jafnframt þannig að kylfingar hafi jarðsamband þ.e. séu í snertingu við jörðina er mikilvægt og Free útsóla- tækni Nike á að stuðla að þeim hagsbótum.

Rétt eins og Tiger hjálpaði við að þróa Free-Inspired golfskóinn frá Nike þá hefir Suzann Pettersen nú gengið til liðs við Nike og hjálpað til við að þróa fyrstu Free-Inspired golfskóna fyrir konur frá Nike.

„Norska frænka okkar" Suzann Pettersen þegar hún sigraði á Lotte Championship í nýju FI Impact golfskónum frá Nike.

„Norska frænka okkar“ Suzann Pettersen þegar hún sigraði á Lotte Championship í nýju FI Impact golfskónum frá Nike.

„Við höfðum nána samvinnu við Pettersen til þess að hanna skó sem hentuðu leik hennar, “ var meðal þess sem Lee Walker yfirmaður rannsóknar- og þróunardeildar golfskóa sagði um nýja Nike FI Impact golfskóinn.  „FI Impact skórinn hjálpar henni til við að flytja orku og jafnvel í sveiflu sem er jafn kraftmikil og hjá Pettersen getur skórinn hjálpað henni til að hámarka árangurinn.“

Í fyrsta móti sínu þar sem Suzann var að prófa golfskóinn fyrir Nike, (LOTTE mótinu) var hún á 65 höggum fyrsta hringinn og var síðan á 4 undir pari og sigraði í mótinu.

„Eftir að ég prófaði þá (skóna) einu sinni dauðlangaði mig til þess að prófa þá á fæti í keppni,“ sagði Suzann. „Ég finn fyrir jörðinni og kraftaukningunni í sveiflu minni.“

Nýju Nike FI Impact skórnir fyrir konur voru fyrst fáanlegir í Bandaríkjunum í gær, þ.e. 1.ágúst 2013 og fást þeir í hvítu/bleiku, hvítu/appelsínugulu, svörtu/bláu.

Það sama er að segja um Nike FI Impact golfskóna fyrir karlmenn, þ.e. þeir komu í verslanir í Bandaríkjunum í gær, 1. ágúst 2013 og fást jafnvel í enn fleiri litum en kvenskórnir (sem eru nýir á markaðnum).  Karlagolfskórnir fást í svörtu/silfurlituðu, Gráu/svörtu, bláum/hvítum, gráum/appelsínugulum lit og frá og með 1. janúar 2014 fást þeir í svörtu/eiturgrænu.

Nýju FI Impact Nike golfskórnir kosta á bilinu $130-160 í Bandaríkjunum (16.000 – 20.000 íslenskar krónur) í Bandaríkjunum.