Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2012 | 19:00

Sunna Víðisdóttir setti nýtt vallarmet í Vestmannaeyjum – 67 högg af bláum! – Viðtal

Sunna Víðisdóttir, GR,  efnilegasti kylfingur ársins 2011, varð í 2. sæti á Egils Gull mótinu, 2. móti á Eimskipsmótaröðinni í Vestmannaeyjum nú um helgina.  Hún spilaði lokahringinn á 3 undir pari og var sú eina í kvennaflokki, sem átti hring undir pari á Vestmannaeyjavelli í mótinu . Alls spilaði Sunna á 12 yfir pari, 222 höggum  (77 78 67). Lokahringurinn var sérlega glæsilegur 67 högg, þar sem Sunna fékk m.a. fugl á erfiðu 17. holu Vestmannaeyjavallar. Skorið á lokahringnum var jafnframt, vallarmet en Sunna bætti 9 ára vallarmet klúbbfélaga síns, Ragnhildar Sigurðardóttur, um 1 högg.

Golf 1 tók eftirfarandi viðtal við Sunnu:

Golf 1: Var markmiðið þitt að bæta vallarmetið á Vestmannaeyjavelli eða bara gerðist það?  

Sunna: Ég vissi ekki einu sinni hvað vallarmetið af bláum á Vestmannaeyjavelli var, þannig að það var ekki markmið, en það er alltaf bónus.

Golf 1: Nú varstu að spila á 67 höggum, er það lægsta skorið þitt?

Sunna: Já, þetta er lægsta skorið.  Þar áður var lægsta skorið mitt 1 undir pari, í Oddinum, sem ég hlaut í Chevrolet-mótinu á Eimskipsmótaröðinni í fyrra.

Golf 1: Hvað gerir þú til þess að ná svona góðum árangri?

Sunna: Bara æfa nóg. Ég var líka loksins að pútta vel, en það hefur ekki alltaf verið svo. Maður fær ekki birdie nema að pútta vel.

Golf 1: Hver var sterkasti hluti leiks þíns úti í Eyjum, voru það púttin?

Sunna: Já, ég myndi segja það, en ég var líka að slá vel, ég hélt boltanum vel í leik og var ekki að gera mörg mistök.

Golf 1: Hver eru markmiðin þín fyrir sumarið?

Sunna: Ég fer inn í hvert mót til þess að vinna það.  Annars vil ég bara halda markmiðum mínum, fyrir mig.

Golf 1: Ætlar þú að vera með í næsta móti Eimskipsmótaraðarinnar: Íslandsmótinu í holukeppni?

Sunna: Já, það kemur ekkert annað til greina.