Súkkulaðiframleiðandi styður golfið!
Lindt konfekt- og súkkulaðiframleiðandinn á Ítalíu, sem er dótturfyrirtæki Lindt risans svissneska hefir tilkynnt að fyrirtækið muni verða helsti bakhjarl og styrktaraðili 70. Opna ítalska sem fram fer í Tórínó 19.- 22. september n.k., en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.
Fabrizio Parini, yfirmaður Lindt á Ítalíu sagði m.a. við það tilefni: „Lindt á Italíu hefir kosið að styrkja 70. Opna ítalska vegna þess að við deilum gildum golfsins, sem eru í samhljómi við hefð, sögu og glæsileika. Í 160 ár hefir fyrirtæki okkar verið þekkt af miklum gæðum súkkulaðsins sem er framleitt á hverjum degi af Maître Chocolatier-num okkar, af sömu ástríðu og sem drífur þá áfram sem velja sér golf að lífsstíl.“ t
George O’Grady, aðalframkvæmdastjóri Evrópumótaraðarinnar sagði m.a. við framangreint tilefni: „Við erum hæstánægð að bjóða Lindt á Ítalíu velkomin sem styrktaraðila Open de Italia á þessu stórafmælisári mótsins, en er nú haldið í 70. sinn.“
Aðrir styrktaraðilar afmælismótsins eru: Pininfarina, Genworth , BNL and Diasorin. Official Car: Jaguar. Official Carrier: Italo. Styrktarðaðilar Pro-Am hlutans: Mario Mele & Partners. Official Champagne: Laurent Perrier. Media Partner: Sky, QN e RTL.
Þeir sem sjá mótinu fyrir útbúnaði eru: Acqua Eva, Aon, Canon, Carlo Fiori, Follador Vino, Maui Jim, Moving car, Peviani, Robe di Kappa, Titleist, + Energia
Á síðasta ári vann Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño Opna ítalska og €1.5 milljóna sigurtékkann, eftir sérlega glæsilegan lokahring upp á 64 högg, en þetta var 6. sigur „Gonzo“ á Evróputúrnum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

