Streelman dregur sig úr Australian Open
Niðurbrotinn Kevin Streelman varð að draga sig úr Australian Open nú fyrr í morgun þegar farið var með hann á spítala vegna augnsýkingar.
Streelman var með tárin í augum þegar hann neyddist til þess að draga sig úr mótinu eftir að hafa einungis spilað 4 holur af 2. hring.
En því miður voru verkirnir í auganu orðnir svo miklir auk þess sem Streelman var farið að svima að hann varð að sætta sig við að draga sig úr mótinu.
Streelman er nr. 43 á heimslistanum og átti að spila með golfstjörnunum Adam Scott og Jason Day, nokkuð sem hann vildi ekki missa af en hann sagðist hafa fundið á sér að eitthvað var ekki eins og það átti að vera, þegar hann vaknaði nú í morgun í Ástralíu.
Hann var kominn 2 undir eftir 2 holur, byrjaði á að fá fugla
En leikur hans versnaði eftir að verkurinn í auganu ágerðist, hann fékk skramba á par-3 3. holuna og skolla á par-4, f. holuna áður en hann ákvað að drag sig úr mótinu.
Farið var með hann á St Vincent’s spítalann.
„Þetta lítur ansi illa út í augnablikinu, en við sjáum hvað setur,“ sagði Streelman.
„…. læknirinn sagði að það væri slæm sýking í því (auganu).
„Ég hef reynt að setja dropa í það (augað) en mig var farið að svima og þetta er í fyrsta sinn sem ég hef gert þetta (þ.e. dregið sjálfan mig úr móti).
„Mér þykir virkilega leitt að gera það.“
Hinn 35 ára Streelman, sem vann Tampa Bay Championship á PGA túrnum í mars s.l., sagðist vonast til að spila aftur í Ástralíu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
